Utandagskrárumræða um kvótafrumvarpið
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Karvel Pálmason:
    Virðulegi forseti. Eins og þingheimi mun kunnugt gengu út boð í hádegisútvarpi um það að samkomulag væri orðið, nánast milli allra, um afgreiðslu svokallaðs kvótafrv. Ég hef óskað eftir að fá hér umræður utan dagskrár um yfirlýsingar af þessu tagi vegna þess að þær standast ekki. Enn hefur ekki verið orðið við þeirri beiðni. Ég viðurkenni að þetta er mjög seint fram komið, en ástæðan er auðvitað sú að fréttirnar komu ekki fyrr en í hádeginu í dag og fyrr var ekki hægt að biðja um umræðu af þessu tagi. Ég hlýt því að óska eftir því við hæstv. forseta að hann leyfi nú þegar utandagskrárumræðu um þetta mál því að ég tel að það skipti æðimiklu hvort hér er rétt greint frá, að um það sé samkomulag að málið verði tekið út úr sjútvn. Ed. og síðan afgreitt hér á laugardegi. Ég vil ekki fara inn í þingskapaumræður að öðru leyti, en ég ítreka að þessi beiðni liggur frammi og verði ekki við henni orðið verður að sjálfsögðu að grípa til annarra ráða hér í Sþ. til þess að fá fram umræður um það hvernig þessum málum er háttað.