Utandagskrárumræða um kvótafrumvarpið
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Yfirlýsingar sem gefnar eru af hálfu hæstv. ríkisstjórnar eða forustumanna ríkisstjórnarflokkanna utan þings geta eðlilega leitt til þess að taka verður mál upp hér á hinu háa Alþingi og inna eftir svörum. Frá mínum bæjardyrum séð er það mjög eðlilegt að hv. 3. þm. Vestf. óski hér eftir umræðu utan dagskrár að slíku tilefni gefnu. Það er sjálfsögð og eðlileg ósk og fyllilega vel rökstudd. Jafnljóst er að það er rétt sem forseti Sþ. hefur hér greint frá, að slíka ósk um utandagskrárumræðu skv. fyrri mgr. 32. gr. þarf að bera fram tveimur tímum fyrir upphaf þingfundar og það er fyllilega eðlilegt að forseti fari skýrt og skilmerkilega eftir þessu ákvæði þingskapa. Hins vegar er líka eðlilegt að bregðast þá þannig við, eins og forseti hefur gert, að bjóðast til að setja hér nýjan fund þegar tvær stundir eru liðnar frá því að óskin kom fram.
    En vegna þess að forseti hélt því fram að sá þingmaður sem óskar samkvæmt þessu ákvæði þingskapa eftir umræðu utan dagskrár yrði að tryggja að viðkomandi ráðherra yrði við vil ég mótmæla þeim skilningi mjög ákveðið. Ráðherrar hafa skyldu til setu á fundum Alþingis og það er ekki einstakra þingmanna að tryggja viðveru þeirra eða að þeir gegni þingskyldu. Þeir hafa, þegar þannig stendur á, rétt til að óska eftir utandagskrárumræðu samkvæmt þessu ákvæði þingskapa. Ef hún er borin fram með réttum fyrirvara, eins og segir í greininni, er skylt að verða við þeirri ósk og það er skylda ráðherra, án atbeina viðkomandi þingmanns, að vera viðstaddur þá umræðu. Ég hygg að þessi skilningur sé ótvíræður og vil láta hann koma hér fram af minni hálfu til þess að ekki skapist hér fordæmi vegna annarrar túlkunar á þessu þingskapaákvæði.