Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég hygg að það fari ekki á milli mála að sá skilningur hv. 1. þm. Suðurl., að það sé forseta að hafa eftirlit með því að menn gegni hér þingskyldum sínum, sé rökréttur. Það að þingmenn hafa haft samband við ráðherra þegar þeir hafa óskað eftir að hefja hér utandagskrárumræðu hefur fyrst og fremst byggst á því að þeir hafa þurft að koma á framfæri við ráðherrann þeim spurningum sem þeir hafa óskað eftir að fá svarað og að sjálfsögðu er rökrétt að þeir einir sem hefja málið hafi á reiðum höndum þær spurningar sem þeir óska eftir að fá svör við. Þetta eru þess vegna tveir aðskildir þættir að mínu viti, sú hefð að þingmaður hafi samband við ráðherra til að greina honum frá því hvers sé vænst af honum í umræðunni og hitt atriðið, að það er forsetans að fylgja því eftir að ráðherrar jafnt sem þingmenn gegni hér sinni þingskyldu.