Karvel Pálmason:
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að fara örfáum orðum um þær tilkynningar sem borist hafa í fjölmiðlum undangengið. Ég tel að hæstv. forseti sé að leggja mér orð í munn að ég hafi ætlað að spyrja hæstv. forsrh. Ég hygg að það sem hér hefur verið gert sé allt á ábyrgð allra ráðherra og þingflokksformanna einnig og ég undanskil engan.
Ég heyrði í hádeginu í dag að búið væri að ná samkomulagi, allsherjarsamkomulagi, um afgreiðslu kvótamálsins svokallaða úr sjútvn. Ed., það mál yrði tekið út úr nefnd á morgun og umræða færi síðan fram í deildinni á laugardag og málinu yrði lokið þá. Ég hef spurst fyrir um þetta, hvort hér sé um alhliða samkomulag að ræða. Mér skilst að svo sé ekki. Ég vil taka fram að það er ekkert samkomulag við mig um þessa málsmeðferð. Ég vil hins vegar spyrja hæstv. ráðherra, og þeir hver um sig ráða hverjir svara, og einnig formenn þingflokka, og ekki þá síst þeirra sem telja sig til stjórnarandstöðu hér innan Alþingis, hvort það sé samkomulag við þá um að málið verði afgreitt með þessum hætti á þessum tíma. Þá á ég auðvitað fyrst og fremst við formann þingflokks Sjálfstfl., hv. þm. Ólaf G. Einarsson, og formann þingflokks Kvennalistans sem málin heyra kannski fyrst og fremst til í þeirri stöðu sem nú er. Vel kann að vera að formenn þeirra þingflokka sem menn kalla stjórnarliða í þessari ríkisstjórn hafi fallist á eitthvað, en ég beini þeirri eindregnu spurningu til ráðherra, og kannski þá forsrh. fyrst hæstv. forseti beindi þeim tilmælum til mín að hann mundi svara slíku, hvort slíkt samkomulag liggi fyrir og hvort það er við stjórnarandstöðuna líka. Og sömu spurningu beini ég til formanna þingflokka stjórnarandstöðunnar hér á Alþingi.
Mér er ljóst að um málið eru meiningar mjög deildar vægast sagt í sjútvn. Ed. og litlar líkur á að nokkur meiri hluti náist þar um málið, þó að ég sé ekkert að útiloka að til greina komi að málið verði afgreitt út úr nefndinni. En staðan í málinu er þessi í dag og mér finnst mjög ólíklegt að svona stórmál, sem búið er að vera til umræðu í sjútvn. æðilengi, að vísu kunnugt frá fyrri tíð þó að í hvert skipti sem frv. hefur verið lagt fram hafi orðið breytingar til hins verra í málinu og það á einnig við núna og ekki síður, þá er málið mjög viðfangsmikið og er umdeilt. Mér þykir ólíklegt að deildin láti sér nægja part úr degi við 2. umr. til þess að afgreiða málið áfram. Mér þykir það mjög ólíklegt. En vel kann svo að vera að stjórnarandstæðingar hafi fallist á slíkt og ég óska eftir að fá vitneskju um hvort slíkt samkomulag er í höfn og frágengið.