Eyjólfur Konráð Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég skal vera stuttorður. Hv. síðasti ræðumaður sagði kannski það sem segja þurfti. Hann vissi ekki annað en þeir ráðherrarnir og þessir miklu ráðamenn hér í þinginu væru að tala með umboði. Það er komið í ljós að þessir menn hafa ekkert umboð til þess að tala fyrir sína flokka, það liggur fyrir. Tveir þm. stjórnarflokka í Ed. Alþingis, sem á nú að fara að skipa fyrir verkum að afgreiða á einni nóttu eða svo eitt það versta mál sem hefur komið til þessarar stofnunar okkar, Alþingis, fyrr og síðar, eru alls ekki reiðubúnir að afgreiða málið. Það verður að semja við þá að klára það bara á nokkrum klukkutímum. Ef minn formaður hefði verið að semja við menn sem höfðu umboð, t.d. forsrh. ( Forsrh.: Ég hef umboð fyrir minn flokk.) Já, hann hefur umboð fyrir sinn flokk, segir hann núna, en hann hefur ekki umboð fyrir stjórnarflokkana í heild, sýnilega. (Gripið fram í.) Nei, og forsrh. er búinn að lýsa því hér yfir að það sé allt í lagi að taka hvaða tíma sem er í þetta, hann getur ósköp vel gert það. (Gripið fram í.) Já, hann er búinn að fá umboð líka til þess að halda áfram.
Þetta er orðin sem sagt ein allsherjar endaleysa og það þýðir auðvitað ekkert að bjóða okkur það í Ed. að við séum þar bara eins og einhverjar dúkkur sem hægt er að láta spila eitthvert sjónarspil. Auðvitað skoðum við þetta mál þegar ljóst er að það hefur alls ekki meiri hluta í þinginu, a.m.k. ekki í Ed. Það verður fellt þar, vona ég.