Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegur forseti. Hér hafa vissulega gerst mjög váleg tíðindi svo að ekki sé meira sagt. Það er komin upp mjög alvarleg staða í afgreiðslu þess máls sem skiptir mestu máli fyrir íslenska þjóð, þ.e. að hv. þm. komi sér saman um frv. til laga um fiskveiðistjórnun. Því miður hefur ríkisstjórninni tekist að klúðra afgreiðslu frv. til laga um fiskveiðistjórnun með þeim hætti að litlar líkur eru fyrir því að það takist að samþykkja nú heilsteypt lög um fiskveiðistjórnun sem taki gildi 1. jan. 1991.
Það er ekki við stjórnarandstöðuna að sakast. Það hefur verið unnið mikið og málefnalega að þróun þessa máls, eins og kom fram í ræðu hv. 1. þm. Suðurl. hér áðan, á grundvelli heilbrigðra, jákvæðra viðhorfa til íslensks sjávarútvegs og fiskiðnaðar og þar með með tilliti til meginhagsmuna íslensku þjóðarinnar. Ríkisstjórnarsamstarfið, þessi óskapnaður, er nú farinn að skaða æskilegan framgang þessa mesta lífshagsmunamáls íslensku þjóðarinnar. Annarleg sjónarmið óheilbrigðrar ríkisstjórnar eru farin að skaða framtíðarstöðu íslenskrar útgerðar, íslensks fiskiðnaðar og afkomu íslensku þjóðarinnar.
Stjórnarþm. hafa lýst því vel hversu illa er komið fyrir þessum málum í höndum núv. ríkisstjórnar. Þeir mótmæla ekki aðeins brtt. ráðherranna, heldur vinnubrögðum þeirra og málsmeðferð. Ríkisstjórnin hefur greinilega ekki vald yfir atburðarásinni með þeim hætti sem tryggir best hagsmuni íslensku þjóðarinnar, sérstaklega útgerðar og fiskiðnaðar og hagsmuni þeirra sem þar starfa. Þess vegna á að vísa þessu máli aftur til ráðgjafarnefndar til frekari meðferðar.