Samkomulag um afgreiðslu kvótafrumvarpsins
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Ég hlýt að leiðrétta hæstv. sjútvrh. Þær brtt. sem nú liggja fyrir um Úreldingarsjóð fiskiskipa eru allt annars eðlis en það frv. sem lagt var fram. Eins og auðséð er af því að í þessum nýju drögum er gert ráð fyrir því að sjóðurinn taki til sín 12 þúsund þorskígildi, þ.e. afla fjögurra togara á hverju ári, sem síðan verða seld á opinberu markaðsverði til einstakra útgerða. Auðvitað er þetta fyrsta skrefið að auðlindaskatti, enda liggur það fyrir að Alþfl. lagði þetta fram sem málamiðlun til þess að tryggja það að stigið yrði fyrsta skrefið í auðlindaskattinum.
    Hvaðan eru þessi 12 þúsund tonn tekin? Þau eru tekin af öllum útgerðum í landinu um leið og aflakvótanum er úthlutað í byrjun ársins. Þessi kvóti er tekinn af öðrum skipum til þess að selja hann opinberri sölu á opinberu verði. Ríkisstjórnin ætlar að selja fiskinn í sjónum með opinberu verði og auðvitað er það fyrsta skrefið að auðlindaskattinum og auðvitað er það um það sem þetta mál snýst fyrst og fremst.
    Ég vil svo aðeins segja það, vegna þeirra orðaskipta sem orðið hafa milli Stefáns Valgeirssonar og Stefáns Guðmundssonar, að síðasta gerð tillagnanna kom í hendur okkar sjálfstæðismanna á 12. tímanum í gær. Þá var okkur sagt að við mættum ekki fara með þessa pappíra til fjölmiðla þar sem þeir yrðu síðan formlega afhentir nefndinni. Hins vegar kom efni tillagnanna í morgunútvarpinu þannig að það er auðvitað alveg ljóst að ef stjórnarmeirihlutanum sýnist svo eru trúnaðarpappírarnir sendir beint til fjölmiðla, en ef þeim sýnist ekki þá á að halda þeim leyndum. Auðvitað er stjórnarandstaðan sett í þá kreppu að hún megi ekki hafa sína dómgreind til þess að ákveða hvenær þessum opinberu pappírum er útdeilt.