Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Þetta er örstutt. Raunverulega var hv. 2. þm. Norðurl. e. búinn að taka af mér ómakið að minnast á það grundvallaratriði sem greinilega hefur orðið til þess að stjórnarþm. tóku hér upp umræður utan dagskrár um þetta mikilsverða mál. Það er nefnilega kjarni málsins, eins og einnig hæstv. sjútvrh. kom að vísu ekki inn á með sama hætti en þó með óbeinum hætti. Það sem verið er að fjalla um, eftir að ráðherrarnir komu sér saman um framlagðar brtt., er að það er verið að stíga fyrsta skrefið í álagningu auðlindaskatts í sambandi við útgerð á Íslandi. Þetta er kjarni málsins.
Það sem gerist við það að þessi brtt. kemur fram er að frv. til laga um fiskveiðistjórnun, sem ekki gerir ráð fyrir auðlindaskattsaðferðinni, en með því að tengja frv. til laga um Úreldingarsjóð inn í málið með þeim hætti sem gerst hefur, þá er búið að gerbreyta þeim hugmyndum, þeirri vinnu og þeim tillögum sem bæði hagsmunaaðilar og fulltrúar þingflokka stóðu að með beinum og óbeinum hætti þótt þeir áskildu sér rétt til að koma með brtt. Þetta er meginefni málsins. Það er eins gott að íslenska þjóðin viti það, sérstaklega útgerðarmenn og sjómenn, að það á að fara að skattleggja þessa atvinnugrein sérstaklega til þess að tryggja og framlengja líf þessarar ríkisstjórnar um eitt ár, brjóta öll grundvallarprinsipp í sambandi við útgerð og fiskvinnslu á Íslandi.