Fjáraukalög 1989
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Guðrún Helgadóttir:
    Hæstv. forseti. Ég skal ekki lengja þessar umræður en ég vil aðeins koma ákveðnu atriði á framfæri sem ég tel hv. þm. eiga rétt á að vita um. Í nál. minni hl. fjvn. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Á mörgum sviðum hefur einkennilega og losaralega verið staðið að verki við framkvæmd þessara mála. Víst er að ríkisfjármálin þarf að taka öðrum og fastari tökum en gert hefur verið í tíð núv. ríkisstjórnar. Alþingi og þjóðin er reynslunni ríkari. Steigurlæti og hátíðlegar yfirlýsingar duga skammt. Niðurstaðan ber vitni um fjármálastjórn sem brást.``
    Ein er sú stofnun í þessu landi sem þetta á ekki við um og það er hið háa Alþingi og það vil ég að hv. þingmenn viti. Á bls. 27 í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga árið 1989 segir svo, með leyfi forseta: ,,Gjöld Alþingis hækkuðu um tæpar 63 millj. kr. sem svarar til raunlækkunar um 2,9%.`` Skýringin á umframbeiðni hins háa Alþingis er að sjálfsögðu óraunhæf fjárlagagerð. Við höfum unnið að því, forsetar þingsins, að fjárlagatillögur okkar fyrir árið 1990 séu raunhæfar og það fé sem við fengum til reksturs Alþingis nægi og ekki gerist þörf að biðja um aukafjárveitingu.
    Um leið og þetta hefur gerst, sem ég hygg að sé nýjung í sögu hins háa Alþingis, að um raunlækkun útgjalda sé að ræða, hafa farið hér fram umfangsmiklar skipulagsbreytingar á öllum rekstri þingsins. Ráðinn hefur verið fjármála- og starfsmannastjóri og vissulega á hann mikla þökk skilda fyrir vinnu sína hér að þessum málum, svo og að sjálfsögðu aðrir starfsmenn þingsins. Ég hygg að það hafi ekki farið fram hjá hv. þm. að gjörbreyting hefur orðið á rekstri nefnda þingsins þannig að um leið og tekist hefur að lækka útgjöld Alþingis hygg ég að þjónusta við hv. þm. hafi batnað verulega.
    Þessu vildi ég koma á framfæri og þó að hér sé tómur salur óska ég eftir því að þetta færist a.m.k. til bókar í þingtíðindum. Hér er um að ræða eina heila árið sem við núverandi forsetar höfum stýrt þinginu og ég er hreykin af að geta sagt að einmitt á þessu ári hefur átt sér stað 2,9% raunlækkun útgjalda um leið og þjónusta við hv. alþingismenn hefur stórbatnað.
    Ég gat ekki stillt mig um að vekja athygli á þessu. Það er gjarnan fyrirferðarmeira sem aflaga fer en það sem vel er gert.