Veiðar á hrefnu
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Stefán Valgeirsson:
    Virðulegi forseti. Ég vil bara óska eftir því og skora á hæstv. ráðherra og þá nefnd sem á að fjalla um þetta mál að hún vinni þannig að þessi tillaga verði samþykkt vegna þess að það er alveg ástæðulaust og hefur í raun og veru verið ástæðulaust að hætta veiðum á hrefnu. Ég held að hún geri verulegan usla í ýmsum nytjafiskum og það þarf að huga að þessu máli og hefði átt að gera það fyrr.