Guðmundur G. Þórarinsson:
Virðulegi forseti. Ég vil fara nokkrum orðum um till. til þál. sem fyrir liggur á þskj. 689. Í haus tillögunnar segir að hún fjalli um frelsi í gjaldeyrismálum og aðlögun að sameiginlegum fjármagnsmarkaði Evrópuríkjanna. Ég hygg að hér sé á ferðinni að mörgu leyti hið athyglisverðasta mál. Ég verð þó að geta þess að mér er ekki fyllilega ljóst hvert tillögumenn stefna með þessum tillöguflutningi. Mér væri því nokkur þökk í því ef hv. 1. flm. tillögunnar, 1. þm. Suðurl., væri viðstaddur þessa umræðu og gæti örlítið skýrt betur en af tillgr. og greinargerð má marka hvað átt er við.
Í fyrsta lagi fjallar tillagan um frelsi í gjaldeyrismálum. Hvorki sjálf tillagan né greinargerðin gerir grein fyrir því hversu hratt flm. vilja fara í þeim málum, en flestir hygg ég að muni vera sammála því að algeru frelsi í gjaldeyrismálum þurfi að ná fram í einhverjum áföngum. Það væri því fróðlegt að heyra frá 1. flm. hvernig hann vill haga málum til þess að koma því frelsi í framkvæmd.
Í öðru lagi segir í haus tillögunnar að hún sé um aðlögun að sameiginlegum fjármagnsmarkaði Evrópuríkja. Sjálf tillgr. fjallar hins vegar um frelsi í gjaldeyrisviðskiptum og síðan að fyrirvarar verði felldir niður sem gerðir hafa verið af hálfu Íslands við efnahagsáætlun Norðurlanda. Mér er ekki alveg ljóst hvert flm. eru að fara með þessum samanburði. Sameiginlegur fjármagnsmarkaður Evrópuríkjanna hefur inni að halda fjölmarga þætti. Sá þáttur sem Evrópuríkin eða Evrópubandalagið hyggst fyrst hrinda í framkvæmd er sameiginlegt peningakerfi. Það hafa þegar verið settar tímatakmarkanir á það hvenær sameiginlegt peningakerfi á að koma í framkvæmd í Evrópubandalaginu.
Ég vildi gjarnan fá að heyra það frá flm. hvort aðlögun að fjármagnsmarkaði Evrópuríkjanna þýði það að þeir vilji taka upp sameiginlegt peningakerfi með Evrópubandalaginu. Ég vek sérstaklega athygli á því að ef það er það sem menn vilja þá stefna menn hér nokkurn veginn í fastgengisstefnu. Ef menn hins vegar meina það ekki, en vilja hið fyrsta koma á frelsi í gjaldeyrisviðskiptum þá hygg ég að menn stefni alveg í öfuga átt, þ.e. frjáls gjaldeyrisviðskipti munu óhjákvæmilega leiða til mjög mikils frelsis eða allt að því frjálsrar gengisskráningar ef gengið er ekki fest með öðrum hætti.
Svör við þessum spurningum væri mjög æskilegt að fá.
Frelsi í gjaldeyrismálum og aðlögun að fjármagnsmarkaði Evrópuríkjanan er engan veginn það sama. Frelsi í gjaldeyrismálum er nauðsynleg forsenda þess að menn geti aðlagað sig fjármagnsmarkaði Evrópubandalagsríkjanna. En sú aðlögun inniheldur miklu fleiri þætti, ekki bara sameiginlegt peningakerfi heldur líka frjálsa fjármagnsflutninga og frjálsa samkeppni í fjármálaþjónustu, frjálsan rekstur til að mynda erlendra banka, tryggingafélaga og kaupleiga og frelsi erlendra aðila til þess að eiga hér eignir og
stunda atvinnurekstur samkvæmt þeim lögum sem innan Evrópubandalagsins gilda.
Ég vil sérstaklega í þessu sambandi vekja athygli á því að nefnd þingflokks Framsfl. um efnahags-, atvinnu- og byggðamál, sem áliti skilaði í október á síðasta ári, fjallaði mjög um frjáls gjaldeyrisviðskipti. Nefndin taldi nauðsynlegt að viðskipti með gjaldeyri yrðu gefin frjáls í ákveðnum áföngum. Með leyfi forseta vil ég rekja hér nokkur atriði sem nefndin lagði áherslu á.
Í fyrsta lagi: Frjáls kaup almennings og fyrirtækja á gjaldeyri verði heimiluð þannig að öllum verði heimilt að kaupa gjaldeyri og leggja inn á gjaldeyrisreikninga í íslenskum bönkum án takmarkana. Reglur verði settar um heimildir til að fara með gjaldeyri úr landinu.
Inn á þennan þátt er ekki komið í grg. með þessari tillögu sem ég hygg þó að yrði að vera eitt af fyrstu skrefunum ef gjaldeyrisviðskipti yrðu gefin frjáls á Íslandi. Jafnframt lagði þingmannanefnd framsóknarmanna til að fyrirtækjum og einstaklingum verði heimilað, án afskipta ríkisvalds, að taka lán erlendis, enda séu þau án ríkisábyrgðar. Að innan þeirra reglna sem settar yrðu um heimildir til að fara með gjaldeyri úr landi verði Íslendingum heimilt að kaupa verðbréf og fasteignir erlendis og eiga bankainnistæður erlendis. Erlendum aðilum verði heimilt að fara með úr landinu fjármuni og yfirfæra íslenskar krónur í erlenda gjaldmiðla með milligöngu innlendra banka, enda geti þeir sýnt fram á að viðskiptin hafi átt sér stað með lögmætum hætti.
Jafnframt lagði nefndin í þessu sambandi sérstaka áherslu á að sett verði skýr lög um eignir og atvinnurekstur útlendinga hérlendis og kveðið á um að erlendir aðilar geti ekki eignast auðlindir Íslands. Sett verði lög um starfsemi erlendrar fjármagnsþjónustu fyrirtækja hérlendis, svo sem banka, tryggingafélaga o.s.frv. Að langlánanefnd verði lögð niður og afskiptum viðskrn. af erlendum lántökum einkaaðila hætt. --- Ég er senn að ljúka máli mínu, virðulegur forseti. Hér er um að ræða mjög umfangsmikið mál.
Ég vil enn að nýju ítreka spurningar mínar. Það væri mjög mikils virði að heyra frá flm. þessarar tillögu hversu hratt þeir vildu ganga fram í þessu frelsi í gjaldeyrismálum og gjaldeyrisviðskiptum. Vilja þeir gefa öll viðskipti með gjaldeyri frjáls, hverju nafni sem nefnast í einu vetfangi? Eiga þeir við með aðlögun að sameiginlegum fjármagnsmarkaði Evrópuríkjanna að Íslendingar aðlagi sig peningakerfi Evrópubandalagsins?