Frelsi í gjaldeyrismálum
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Nú verður forseti að játa að hann skilur ekki alveg um hvað þessi umræða snýst. Hér er á dagskrá frelsi í gjaldeyrismálum, þáltill. Ef ég heyrði rétt var hv. 1. þm. Reykv. að ræða það mál undir liðnum um þingsköp. Hv. þm. er á mælendaskrá.