Frelsi í gjaldeyrismálum
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegur forseti. Mér skilst að hér sé til umræðu frelsi í gjaldeyrismálum og vísar hv. 1. þm. Reykv. til spurningar sem ég komst ekki að með að svara hér fyrir nokkrum dögum. Hann spurði, ef ég man rétt, að því hvort fyrirvari sem fjmrh. hefði sett við áætlun Norðurlandanna um aukið frelsi í gjaldeyrismálum stæði enn eða hefði verið aflýst, ef ég má orða það svo.
    Ég vil minna á það að á þingi 7. febr. 1989 lýsti ég niðurstöðu af ítarlegri vinnu stjórnarflokkanna að mótun stefnu á ýmsum sviðum efnahagsmála. Þar var allítarlega fjallað um frelsi í gjaldeyrismálum. Með þeirri samstöðu sem þar náðist hef ég litið svo á að þeir fyrirvarar sem fjmrh. setti áður hafi ekki lengur verið nauðsynlegir. Ég vek athygli á því, þetta er því miður eftir minni, en ég held að ég fari rétt með, að í þeirri samþykkt segir m.a. á einum stað að farið skuli að áætlun Norðurlandanna í meginatriðum. Sömuleiðis segir einhvers staðar í þeirri sömu samþykkt að þess skuli gætt að ekki valdi óstöðugleika í íslenskum peninga- og gjaldeyrismálum. Og í ítarlegri umræðu sem fram fór um þetta leit ég svo á að þar með væru meginfyrirvarar fjmrh. í raun teknir inn í þessa samþykkt.
    Ég vil líka taka það fram að ég tel þetta afar mikilvægt, ekki síst aukið frelsi sem að sjálfsögðu verður hér. Við erum í þessari hringiðu og hér mun smám saman verða aukið frelsi í gjaldeyrismálum. En það má ekki leiða til þess að okkar litli og að mörgu leyti vanhæfi peningamarkaður til að taka þátt í fullkomnu frelsi verði óstöðugur, valdi óstöðugleika. Og að því hefur verið unnið síðan, skref fyrir skref, að styrkja þennan litla peningamarkað. M.a. hafa bankar verið sameinaðir, eins og hæstv. viðskrh. lýsti í dag, hann gerði það á tveimur mánuðum. Það hefur vitanlega styrkt hið íslenska bankakerfi mikið og gerir það færara að mæta stöðugt opnari alþjóðlegum peningamarkaði.
    Nú er unnið á vegum nefndar sem hæstv. viðskrh. hefur skipað að því að gera bönkunum kleift að standast, ef ég má orða það svo, minni verðbólgu, draga úr vaxtamun. Hæstv. viðskrh. nefndi í dag í ræðu sinni á aðalfundi Seðlabankans nokkur atriði, m.a. er dregið úr bindingu bankana o.s.frv., en það eru mörg önnur atriði sem þarf að leysa. Og ég þarf vafalaust ekki að minna á það að í samþykkt stjórnarflokkanna, bæði í málefnasamningi og það hefur komið fram síðan ítrekað, þá mun vísitölubinding fjármagns verða afnumin þegar verðbólga er komin niður fyrir 10% á 6 mánaða grundvelli. Það líður sem betur fer óðum að því. Það tel ég nú persónulega eitt allra mikilvægasta atriðið til að gera íslenskan peningamarkað færan um að starfa á sambærilegum og opnum grundvelli með peningamarkaði Evrópu og þar með heimsins. Að þessu er markvisst unnið. En ég vil bara leggja áherslu á það að það verður að gerast jafnt og þétt um leið og íslenskur peningamarkaður er styrktur, og

einmitt þannig að ekki valdi óstöðugleika, hvorki á íslenskum peningamarkaði né t.d. í viðleitni ríkissjóðs til að afla sér fjármagns á innlendum markaði sem m.a. seðlabankastjóri lagði höfuðáherslu á í ræðu sinni í dag.