Stóriðjuver á landsbyggðinni
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Hæstv. forsrh. hefur talað mjög skýrt. Hann hefur sagt það við hv. 6. þm. Norðurl. e. að skoðanir hans skipti ekki máli. Hann megi sín vegna vera á móti þeim frv. sem aðrir stjórnarflokkar hafa komið sér saman um þar sem meiri hlutinn sé hvort sem er í þeirra hendi. Það má auðvitað segja að þetta sé þingræðislegt. Það er ekkert sem mælir á móti því að flokkar sem hafa meiri hluta á Alþingi haldi ekki áfram stjórnarsamstarfi. Þó svo að einn stjórnarflokkanna kjósi að hætta því samstarfi, þá er það hans mál og skiptir ekki máli í því sambandi, og þá er það auðvitað þingræðislegt að ríkisstjórnin haldi áfram. En þetta lýsir því að hæstv. forsrh. telur að hann hafi ekki sömu skuldbindingar að þessu leyti gagnvart hv. 6. þm. Norðurl. e. og hann hafði þegar fyrri ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var við völd. Þetta er deginum ljósara. Við skiljum auðvitað að í þessu felst að forsrh. er búinn að opna dyrnar og bjóða þessum hv. þm. að ganga út, sem þó varð til þess að hjálpa hæstv. forsrh. í þann stól sem hann situr nú í og komst í með eins þokkalegum hætti og við vitum um og ástæðulaust að rifja upp kannski nema einu sinni. En kannski má minna á að þær þrjár ríkisstjórnir sem hafa setið þetta kjörtímabil hafa verið hver með sínum hætti, en þó allar því markinu brenndar að heilindin hafa ekki verið mikil. Auðvitað er mikið áhugaefni, en að vísu einkamál, að fá um það upplýsingar hvort hæstv. forsrh. hafi verið búinn að viðra þessi sjónarmið við hv. 6. þm. Norðurl. e. í einkasamtali áður en hann lýsti því yfir opinberlega að honum væri frjálst að ganga út og ríkisstjórnin mundi ekki kippa sér upp við það.