Frsm. menntmn. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Menntmn. hefur fjallað um frv. til laga um Listskreytingasjóð. Leggur nefndin til að frv. verði samþykkt eins og það liggur nú fyrir.
Í nál. kemur fram að nefndarmenn leggja á það áherslu að mikilvægt sé að lögbundin framlög til sjóðsins verði ekki skert í fjárlögum.
Undir þetta nál. rita allir nefndarmenn í menntmn. hv. deildar.