Skipan prestakalla
Föstudaginn 27. apríl 1990


     Forseti (Jón Helgason):
    Ég mun að sjálfsögðu verða við þeirri ósk sem hér hefur fram komið frá tveimur hv. nefndarmönnum allshn. um að ljúka ekki þessari umræðu nú. Ég tók þannig til orða áðan að nefndin í heild gæti ekki staðið að breytingu vegna þess að ég vildi ekki útiloka að einstakir nefndarmenn gerðu það en taldi mig geta talað þá fyrir mig sjálfan þannig að ég mundi ekki geta staðið að slíkri brtt.