Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég ætla að tala um málið þó mér væri ljúft að stuðla að frekari útbreiðslu Tímans og sé ánægður með að fyrrv. ritstjóri Morgunblaðsins skuli sýna því ágæta blaði slíkan áhuga, þá var það nú ekki það sem ég ætlaði að ræða hér um, heldur það mikilvæga mál sem hér er til umfjöllunar í deildinni.
Það er svo með þetta mál að að því hefur verið unnið í mjög langan tíma og ég leyfi mér að fullyrða að um það ríkir góð samstaða innan kirkjunnar og á þeim tíma sem ég gegndi starfi kirkjumálaráðherra var ánægjulegt að koma að því starfi. Ég þakka hæstv. núv. kirkjumálaráðherra fyrir hans góðu störf að þessu mikilvæga máli og ég veit að allir starfsmenn Þjóðkirkjunnar og sóknarnefndir leggja mikla áherslu á að þessu máli verði lokið.
Hins vegar verður auðvitað aldrei hægt að vinna þannig að slíkum málum að allir séu sammála. Það eru mismunandi skoðanir innan sóknanna í landinu. Það eru t.d. mismunandi skoðanir á því hvað prestaköllin eigi að vera stór og það hefur verið mikil andstaða oft og tíðum gegn því að sameina prestaköll. Hins vegar er ljóst að það eru önnur sjónarmið sem segja okkur að eðlilegt sé að gera það í ljósi breyttra samgangna.
Ég bað um orðið vegna þess að hér var vikið að einu tilteknu máli sem er Bjarnanessprestakall. Ég hlýt því að gera nokkra grein fyrir því máli og lýsa afstöðu minni í því. Um langan tíma hefur prestur í Bjarnanessprestakalli setið á Höfn og það má segja að um langan tíma hafi þeir prestar sem þar hafa gegnt viljað sitja á þeim stað af margvíslegum ástæðum sem ég ætla ekki að rekja. Þar hefur verið húsnæðisvandi og menn hafa staðið frammi fyrir því hvort byggt skyldi upp á nýjan leik í Bjarnanesi. Sá prestur sem hefur setið á Höfn á þeim tíma taldi nauðsynlegt að fjarlægja þær byggingar sem þar eru fyrir, sem er líka viðkvæmt mál því þar hafa bændur búið um langan tíma, fengu þar ábúð þegar prestur sat þar fyrir mjög löngu síðan.
Það er nauðsynlegt í tilfellum sem þessum, að mínu mati, að sóknarnefndirnar ráði mestu um það hvað gera skuli í svo viðkvæmum málum. Ég tel það á allan hátt óeðlilegt að Alþingi ákveði það með löggjöf hvar prestar skuli sitja, heldur eigi fólkið sjálft að hafa mest um það að segja, koma því áliti til biskups, biskups að úrskurða um það og kirkjumrh. síðan að staðfesta það. Í þessu máli liggur það fyrir að sóknarnefnd í Nesjum er andvíg því að prestur sitji á Höfn. Sóknarnefnd á Höfn vill hins vegar að prestur sitji þar og sóknarnefnd í Bæjarhreppi í Lóni vill jafnframt að presturinn sitji á Höfn. Og þeir prestar sem starfað hafa þar að undanförnu, í alllangan tíma, hafa fremur kosið að vera þar. Þessi vilji liggur fyrir og biskup hefur skrifað bréf um þennan vilja og ég úrskurðaði það sem þáv. kirkjumrh. að að þessum vilja skyldi farið.
Nú kann sumum að finnast að í tilfelli sem þessu eigi minni hluti að ráða af ýmsum öðrum ástæðum,
eins og sögulegum o.s.frv. En hver er færari um að gæta þessarar sögu en fólkið sjálft sem þarna býr? Ég er hlynntur því að kirkjan hafi sem mest sjálfstæði og sjálfstæði hennar hlýtur m.a. að felast í því að þeir sem í sóknunum búa hafi mest um það að segja hvernig þessum málum er fyrir komið. Það er að mínu mati algjörlega óeðlilegt að Alþingi Íslendinga gangi á móti slíkum meirihlutavilja og þá þurfi það að vera mögulegt í ljósi breyttra aðstæðna að breyta þessari skipan ef meiri hlutinn vill það. Ég get nefnt mörg önnur dæmi sem eru hliðstæð. Ég get t.d. nefnt að það situr prestur á Valþjófsstað í Fljótsdal, í mínu kjördæmi, alveg í endanum á sókninni. Það er alveg ljóst að þegar fram líða stundir mun verða þar breyting á ef meiri hluti sóknarinnar kýs svo og ég tel að sóknirnar eigi að hafa þennan rétt.
Á þetta vildi ég leggja áherslu og vænti þess að hér sé hægt að afgreiða þetta mál. Ef menn telja eðlilegt að þetta sé ákveðið með lögum og vilji meiri hlutans í sóknunum ekki virtur, þá er það auðvitað skoðun út af fyrir sig. En henni er ég mjög andvígur.