Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Gulur, rauður, grænn og blár, þeir litir geta gengið í fyrirsagnir, en það er nú meginskylda góðs blaðs og góðra blaðamanna að falsa ekki fréttir með fyrirsögnum. Það er einn mesti glæpurinn af öllum glæpum, að leiða fólk í villu með því að hafa fyrirsögnina alls ekki í samræmi við það sem viðkomandi maður segir. Það sýnir að þetta blað --- ég held nefnilega að það sé rétt sem hæstv. forsrh. sagði, ég held hann hafi aldrei sagt þetta með þessum orðum hér í umræðunni. Það sýnir að þetta blað, Tíminn, er sorpblað. Það falsar fréttir vísvitandi í fimm dálka fyrirsögn. Það er sorpblað.