Heilbrigðisþjónusta
Föstudaginn 27. apríl 1990


     Frsm. heilbr.- og trn. (Stefán Guðmundsson):
    Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, frá heilbr.- og trn., en nál. hljóðar svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað rækilega um þetta frv. Eftirtaldir menn hafa komið á fund nefndarinnar til viðræðna um efni þess: Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri og Dögg Pálsdóttir, deildarstjóri í heilbr.- og trmrn., Logi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landakotsspítala, Ólafur Örn Arnarson, yfirlæknir Landakotsspítala, Magnús Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Borgarspítalans, Páll Gíslason, formaður stjórnar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, varaformaður stjórnar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar, Sigurgeir Sigurðsson, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ólafur Magnússon, formaður Félags sjálfstætt starfandi heimilislækna, Skúli Johnsen borgarlæknir, Sigþrúður Ingimundardóttir, formaður Hjúkrunarfélags Íslands, og Ásta Möller, formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga.
    Nefndinni bárust erindi og umsagnir um frv. frá: borgarlækni, Félagi forstöðumanna sjúkrahúsa, Félagi íslenskra heimilislækna, Félagi sjálfstætt starfandi heimilislækna, Félagi yfirlækna, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Friðriki J. Friðrikssyni héraðslækni, Geðlæknafélagi Íslands, Geðverndarfélagi Íslands, heilbr.- og trmrn., heilbrigðisráði Reykjavíkurborgar, Stefáni Þórarinssyni héraðslækni, Halldóri Jónssyni héraðslækni, Ísleifi Halldórssyni héraðslækni, Hjúkrunarfélagi Íslands, Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga, Húsavíkurkaupstað, Jóhanni Ág. Sigurðssyni héraðslækni,
landlækni, Landssambandi sjúkrahúsa á Íslandi, Læknafélagi Austurlands, Læknafélagi Íslands, Læknafélagi Reykjavíkur, læknum á höfuðborgarsvæðinu, nefnd landshlutasamtaka sveitarfélaga um stjórn heilbrigðismála, Ólafi F. Magnússyni lækni, Ólafi H. Oddssyni héraðslækni, ríkisspítölum, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði, St. Jósefsspítalanum í Landakoti, starfsmannaráði Borgarspítalans, starfsmannaráði Sjúkrahúss Suðurlands og Öryrkjabandalagi Íslands.
    Frv. var lagt fram á haustþingi og var upphaflega stefnt að afgreiðslu þess fyrir jól. Um það tókst ekki samstaða en eftir veigamiklar breytingar á frv. náðist að afgreiða málið úr nefndinni. Helstu breytingar, sem lagt er til að gerðar verði á frv., varða skipan heilbrigðismálaráðs, stofnun nýrra heilsugæsluumdæma og breytingu á skipan heilsugæslustöðva í Reykjavík. Einnig er gert ráð fyrir því að sjúkraþjálfarar starfi við allar H2-heilsugæslustöðvar og í hverju heilsugæsluumdæmi í Reykjavík og að aldraðir verði einnig vistaðir á hjúkrunarheimilum eins og langlegusjúklingar. Bætt er við heimild fyrir heilbrrh. til að skipa héraðslækni í fullt starf við önnur

læknishéruð en þau sem getið er í 3. gr. frv. Ný ákvæði eru sett um kostnað við viðhald og tækjakaup heilsugæslustöðva, einnig um stjórnir heilsugæsluumdæma í Reykjavík og sjúkrastofana Reykjavíkur og gert er ráð fyrir að heilbrrh. geti samið við aðra aðila um rekstur heilbrigðisstofnana.
    Nefndin telur rétt að ágreiningur um valdsvið sérmenntaðs starfsliðs á heilbrigðisstofnunum verði leystur með sama hætti og verið hefur. Nefndin bendir sérstaklega á breytingu á 10. gr., um að þrátt fyrir skiptingu í heilsugæsluumdæmi geti íbúar borgarinnar jafnan valið sér heilsugæslu- eða heimilislækni utan heilsugæslustöðva. Nefndin tekur skýrt fram að nauðsynlegt sé að þróa heilsugæslukerfið í Reykjavík en leggur jafnframt áherslu á að réttur sjálfstætt starfandi lækna sé tryggður.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.``
    Undir nál. rita Stefán Guðmundsson, formaður nefndarinnar, Salome Þorkelsdóttir, með fyrirvara, Karl Steinar Guðnason, Guðmundur H. Garðarsson, með fyrirvara, Margrét Frímannsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir og Guðrún Agnarsdóttir sem ritar einnig undir nál. með fyrirvara.
    Við þetta frv., eins og ég vék að áðan, eru fluttar brtt. á þskj. 1053 frá heilbr.- og trn. Lagt er til að 3. gr. orðist svo:
,,2. og 3. mgr. 6. gr. laganna orðist svo:
    6.2. Ráðherra skipar héraðslækni í Reykjavík, í Norðurlandshéraði eystra og Reykjaneshéraði til fjögurra ára í senn. Ráðherra er heimilt að skipa héraðslækna til fjögurra ára í senn í öðrum héruðum sé það talið nauðsynlegt vegna umfangs héraðslæknisstarfsins. Skulu héraðslæknar samkvæmt áðurgreindu vera sérmenntaðir embættislæknar eða hafa jafngilda menntun til starfsins. Þar sem ekki eru skipaðir sérstakir héraðslæknar skipar ráðherra einn af starfandi heilsugæslulæknum héraðsins sem héraðslækni til fjögurra ára í senn.
    6.3. Ráðherra skipar héraðshjúkrunarfræðing í Reykjavík, í Norðurlandshéraði eystra og Reykjaneshéraði til fjögurra ára í senn. Ráðherra er heimilt að skipa héraðshjúkrunarfræðinga til fjögurra ára í senn í öðrum héruðum sé það talið nauðsynlegt vegna umfangs starfsins. Þar sem ekki eru skipaðir sérstakir
héraðshjúkrunarfræðingar er ráðherra heimilt að skipa einn af starfandi heilsugæsluhjúkrunarfræðingum héraðsins sem héraðshjúkrunarfræðing til fjögurra ára í senn.``
    Við 4. gr.: ,,1. málsl. 1. efnismgr. orðist svo: Heilbrigðismálaráð skal skipað héraðslækni, héraðshjúkrunarfræðingi og einum fulltrúa tilnefndum af stjórn hverrar heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss í héraðinu.``
    Lagt er til að 10. gr. orðist svo:
,,2. mgr. 14. gr. laganna orðist svo:
    14.2. Í Reykjavík skulu starfrækt fjögur heilsugæsluumdæmi sem hér segir:

    1. Vesturbæjarumdæmi, þar sem starfa þrjár heilsugæslustöðvar sem hér segir:
    1.1. Garðastræti H2, starfssvæði: Sóleyjargata, Fríkirkjuvegur og Lækjargata að austan og Hringbraut til sjávar að sunnan.
    1.2. Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg H2, starfssvæði: Sóleyjargata, Fríkirkjuvegur og Lækjargata að vestan, flugvöllur að sunnan og Snorrabraut að austan.
    1.3. Drápuhlíð H2, starfssvæði: Hlíða-, Norðurmýrar- og Túnahverfi sem markast af Snorrabraut og flugvallarsvæði að vestan og Kringlumýrarbraut að austan.
    2. Miðbæjarumdæmi, þar sem starfa þrjár heilsugæslustöðvar sem hér segir:
    2.1. Laugarnes H2, starfssvæði: Kringlumýrarbraut að vestan, Miklabraut austan Kringlumýrarbrautar að sunnan, Grensásvegur, Holtavegur, Sunnuvegur, Laugarásvegur og Dalbraut að austan.
    2.2. Borgarspítalinn H2, starfssvæði: Kringlumýrarbraut að vestan, Miklabraut austan Kringlumýrarbrautar að norðan, Breiðholtsbraut að austan og Kópavogur að sunnan.
    2.3. Voga- og Heimahverfi H2, starfssvæði: Grensásvegur, Holtavegur, Sunnuvegur, Laugarásvegur og Dalbraut að vestan, Elliðaár að austan og Miklabraut að sunnan.
    3. Austurbæjarumdæmi syðra, þar sem starfa tvær heilsugæslustöðvar sem hér segir:
    3.1. Breiðholt I og II H2, starfssvæði: Elliðaár að norðan, Reykjanesbraut að vestan, landamerki við Kópavog að sunnan og Arnarbakki að austan.
    3.2. Breiðholt III H2, starfssvæði: Elliðaár að norðan og austan, Arnarbakki og Höfðabakki að vestan og Breiðholtsbraut að sunnan.
    4. Austurbæjarumdæmi nyrðra, þar sem starfa tvær heilsugæslustöðvar sem hér segir:
    4.1. Árbær og Seláshverfi H2, starfssvæði: Grafarvogur að norðan, Elliðaár að vestan og sunnan og Lækjarbotnar að austan.
    4.2. Grafarvogshverfi H2, starfssvæði: Grafarvogur að sunnan, landamerki Reykjavíkur og Mosfellsbæjar að austan.
Starfssvæði heilsugæslustöðvar á Seltjarnarnesi nær frá Hringbraut að norðan að flugvelli að austan.
Þrátt fyrir skiptingu Reykjavíkur í heilsugæsluumdæmi geta íbúar borgarinnar jafnan valið sér heilsugæslulækni eða heimilislækni utan heilsugæslustöðva og leitað læknishjálpar sem þeir eiga auðveldast með að ná til hverju sinni.``
    Lagt er til að 15. gr. orðist svo:
    ,,1. mgr. 17. gr. orðist svo:
    17.1. Ráða skal sjúkraþjálfara til starfa við heilsugæslustöðvar H2. Í Reykjavík skal vera a.m.k. einn sjúkraþjálfari í hverju heilsugæsluumdæmi.``
    Á eftir 15. gr. er lagt til að komi ný grein er orðist svo:
    ,,Við 1. mgr. 18. gr. laganna bætast fjórir nýir málsliðir er orðist svo: Hvorugur aðili á kröfur á hinn um leigu vegna eignar eða eignarhluta. Meiri háttar

viðhald og tækjakaup skulu teljast til stofnkostnaðar. Almennur viðhaldskostnaður fasteigna og tækja greiðist sem rekstrarkostnaður. Heilbrrh. setur með reglugerð nánari ákvæði um hvað telst til meiri háttar viðhalds.``
    Lagt er til að 16. gr., er verði 17. gr., orðist svo:
    ,,Eftirtaldar breytingar verða á 20. gr. laganna:
    a. Síðari málsliður 1. mgr. falli brott.
    b. 2. mgr. greinarinnar orðist svo:
    20.2. Ráðherra setur gjaldskrá fyrir veitta þjónustu heilsugæslustöðva og skal hún vera í samræmi við hliðstæðar gjaldskrár samkvæmt lögum um almannatryggingar.``
    Lagt er til að 17. gr., er verði 18. gr., orðist svo:
    ,,Í stað 2. mgr. 21. gr. laganna komi tvær nýjar málsgreinar er orðist svo:
    21.2. Þegar heilsugæslustöð er í starfstengslum við sjúkrahús fer stjórn þess, sbr. 30. gr., með málefni allrar stofnunarinnar. Læknaráð og starfsmannaráð skulu vera sameiginleg fyrir alla stofnunina. Séu fleiri en ein stöð í sama sveitarfélagi skulu þær vera undir einni sameiginlegri stjórn.
    21.3. Stjórnir heilsugæsluumdæma í Reykjavík skulu skipaðar fimm mönnum. Einn stjórnarmanna skal skipaður af ráðherra og skal hann vera formaður; hann skal vera búsettur í umdæminu. Þrír skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu borgarstjórnar og einn samkvæmt tilnefningu starfsmanna heilsugæslustöðvanna í
umdæminu. Ráðherra setur reglur um kjör fulltrúa starfsmanna. Í Reykjavík ráða stjórnir heilsugæslustöðva framkvæmdastjóra þeirra og hafa þeir sömu skyldur og framkvæmdastjórar sjúkrahúsa skv. 29. gr. Fer um mat á hæfni hans skv. 30. gr. Ráðherra setur reglugerð í samráði við héraðslækni um fyrirkomulag á samvinnu heilsugæslustöðva innan Reykjavíkurhéraðs. Þar skal m.a. kveðið á um ráðningu framkvæmdastjóra.``
    Lagt er til að 18. gr., er verði 19. gr., orðist svo:
    ,,22. gr. laganna orðist svo:
    22.1. Stjórnir heilsugæslustöðva ráða starfslið stöðvanna og fer um laun þeirra samkvæmt kjarasamningum við hlutaðeigandi stéttarfélög.``
    Lagt er til að 4. tölul. 20. gr., er verði 21. gr., orðist svo:
    ,,4. Hjúkrunarheimili. Vistheimili fyrir aldraða og sjúklinga sem búið er að sjúkdómsgreina en þarfnast vistunar og meðferðar sem hægt er að veita utan almennra og sérhæfðra sjúkrahúsa.``
    Lagt er til að 22. gr., er verði 23. gr., orðist svo:
    ,,Eftirtaldar breytingar verða á 30. gr. laganna:
    a. 2. mgr. orðist svo:
    30.2. Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar skal skipuð fimm mönnum. Borgarstjórn Reykjavíkurborgar kýs þrjá fulltrúa í stjórnina og starfsmannaráð tvo.
    b. Á eftir 2. mgr. bætast við tvær nýjar málsgreinar er orðist svo:
    30.3. Sjúkrahúsum (öðrum en þeim sem um getur í 1., 2. og 4. mgr. þessarar greinar) skal stjórnað af fimm manna stjórnum sem ráðherra skipar.

Starfsmannaráð sjúkrahúsa tilnefna einn mann, hlutaðeigandi sveitarstjórn eða stjórnir þrjá og ráðherra einn og skal hann vera búsettur á starfssvæði sjúkrahússins; er hann jafnframt formaður stjórnarinnar.
    30.4. Einkasjúkrahúsum og sjálfseignarstofnunum skal stjórnað af fimm manna stjórnum þar sem í eiga sæti þrír kosnir af eigendum, einn fulltrúi kosinn af starfsmannaráði og einn tilnefndur af heilbr.- og trmrh. Stjórnir einkasjúkrahúsa og sjálfseignarstofnana skipta sjálfar með sér verkum.
    c. Við greinina bætist ný málsgrein er verði 8. mgr. og orðist svo:
    30.8. Stjórnir sjúkrahúsa ráða starfslið sjúkrahúsanna og fer um laun þeirra samkvæmt kjarasamningum við hlutaðeigandi stéttarfélög.``
    Lagt er til að 23. gr. falli brott.
    Lagt er til að 24. gr. orðist svo:
    ,,Eftirtaldar breytingar verða á 34. gr. laganna:
    a. 2. mgr. orðist svo:
    34.4. Sveitarfélögum er skylt að taka þátt í framkvæmdum í samræmi við ákvörðun Alþingis um fjárveitingar á hverjum tíma. Ráðherra getur gert samkomulag við aðra aðila en þá sem falinn er rekstur heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum þessum, um framkvæmdir eða rekstur heilbrigðisstofnana innan ramma áætlana 33. gr.
    b. Við 3. mgr. bætast fjórir nýir málsliðir er orðist svo: Hvorugur aðili á kröfu á hinn um leigu fyrir eign eða eignarhluta. Meiri háttar viðhald og tækjakaup skal teljast til stofnkostnaðar. Almennur viðhaldskostnaður fasteigna og tækja greiðist sem rekstrarkostnaður. Heilbrrh. setur með reglugerð nánari ákvæði um hvað telst til meiri háttar viðhalds.
    c. Síðari málsliður 4. mgr. falli brott.``
    Lagt er til að 25. gr. falli brott, svo og 27. gr.
    Lagt er til að 29. gr., er verði 27. gr., orðist svo:
    ,,Lög þessi öðlast þegar gildi. Þegar lögin hafa hlotið staðfestingu skal fella þau inn í meginmál laga nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt.``
    Í stað 1. og 2. tölul. ákvæðis til bráðabirgða komi nýr töluliður sem orðist svo:
    ,,1. Heilsuverndarstarf í Reykjavík samkvæmt lögum nr. 44/1955, sbr. lög nr. 28/1957, skal haldast óbreytt frá því sem er við gildistöku laga þessara þar til heilsugæslustöðvar hafa verið skipulagðar til þess að annast það en þó ekki lengur en til ársloka 1991. Ráðherra skal skipa þriggja manna stjórn Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík. Formaður skal skipaður án tilnefningar, einn skal skipaður samkvæmt tillögu Reykjavíkurborgar og einn samkvæmt tillögu tryggingaráðs. Stjórnin skal í umboði heilbr.- og trmrh. annast rekstur Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur og í samráði við héraðslækni og stjórnir heilsugæsluumdæmanna í Reykjavíkurhéraði undirbúa að starfsemi stöðvarinnar leggist niður eigi síðar en 1. jan. 1992. Frá þeim tíma falla lög um heilsuverndarstarf, nr. 44/1955, sbr. lög nr. 28/1957, úr gildi.``

    Lagt er til að 3. tölul., er verði 2. tölul., orðist svo:
    ,,2. Stjórnir heilsugæslustöðva í Reykjavík, sbr. 21. gr., og stjórnir sjúkrahúsa, sbr. 30. gr., skulu kosnar eftir næstu reglulegar sveitarstjórnarkosningar en fram að þeim tíma skulu þær vera óbreyttar. Tilflutningur starfsmanna, annarra en starfsmanna Borgarspítala, einkasjúkrahúsa og sjálfseignarstofnana, fer fram þegar nýjar stjórnir hafa
tekið við og skal lokið fyrir árslok 1990. Um réttindi þeirra starfsmanna fer skv. lögum nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.``
    4. tölul. falli síðan brott.
    Hér er um umfangsmiklar breytingar að ræða og ég vona að hv. þm. hafi nú áttað sig á þessum lestri öllum. Hann er allumfangsmikill og flókinn. Tekist hefur, að ég held, mjög gott samstarf í nefndinni og ég vil nota tækifærið og þakka nefndarmönnum fyrir að hér hefur verið leitað leiða til þess að sættast í annars kannski nokkuð viðkvæmu máli og þakka nefndarmönnum fyrir samstarfið.