Frumvarp um fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Föstudaginn 27. apríl 1990


     Sighvatur Björgvinsson:
    Herra forseti. Ég vil aðeins staðfesta það sem rétt er, að þetta mál var lagt fram hér á Alþingi í desember. Ég vil taka það fram að framsögu um málið var þráfaldlega frestað, m.a. að beiðni hæstv. fjmrh. Urðu þar af leiðandi miklar tafir á því að hægt væri að taka frv. til umræðu á eðlilegum tíma. Það var vegna þess að bæði hæstv. forseti og við flm. gerðum allt sem við vorum beðnir um í sambandi við frestun á málinu en þær óskir komu frá fjmrh. og hæstv. ríkisstjórn. Það var því ekki fyrr en með seinni skipunum sem málið kom til umræðu hér á Alþingi og e.t.v. ætlar þetta að verða til þess að Alþingi gefst ekki kostur á að láta atkvæði ganga um þetta mál. Ég vil þó ekki sleppa þeirri von alveg að það takist.
    Ég verð að sjálfsögðu, eins og allir aðrir þingmenn og við flm. þessa máls, að una þeirri meðferð sem málið hlýtur á Alþingi. Við eigum ekki annars kost en að óska eftir því við formann hv. nefndar að hann sjái til þess, hvað sem líður afstöðu hans til málsins, að þetta mál komist úr nefnd og til atkvæða hér í deildinni. Síðan ráða forsetar áframhaldi málsins. Ég vil aðeins taka það fram að við flm. erum allir af vilja gerðir til þess að greiða fyrir afgreiðslu þessa máls.
    Í 1. umr. um frv. komu fram nokkrar ábendingar varðandi efnisatriði í 2. gr. sem væru ekki nægilega ljós miðað við tilganginn eins og honum var lýst í greinargerð. Þess vegna vil ég koma hér á framfæri við formann hugmyndum um, og raunar tillögu, hvernig orða mætti þá grein þannig að hún væri í meira samræmi við tilganginn eins og honum er lýst í greinargerð frv. Vona ég að það geti hjálpað hv. nefnd í þeim störfum sem hún er að vinna við skoðun á þessu frv.
    En ég ítreka það, virðulegi forseti, að ég mælist mjög eindregið til þess að sá frestur sem við svo rýmilega veittum að beiðni handhafa framkvæmdarvalds á málinu verði ekki til þess að það verði ekki lagt fyrir þessa hv. deild til afgreiðslu.