Frumvarp um fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Föstudaginn 27. apríl 1990


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Það er ekkert skrýtið að hv. 2. þm. Norðurl. v. skuli kveðja sér hljóðs og ræða um það hvort hugmyndin sé að afgreiða þetta tiltekna mál, sem hér hefur verið spurst fyrir um, úr hv. fjh.- og viðskn. Nefndin hefur haft þetta mál hjá sér um langan tíma. Því miður verður að segja það eins og er að málið hefur ekki verið rætt ítarlega efnislega í nefndinni. Það hefur verið tekið fyrir og því lýst að fram hafi komið athugasemdir frá hæstv. fjmrh. Síðan hefur því verið slegið föstu að síðar skuli málið rætt. Ég vil að það komi fram að í nefndinni hef ég lýst því yfir að ég sé fylgjandi því að málið fái afgreiðslu á þessu þingi, enda virðist vera mjög víðtæk samstaða um að það fái afgreiðslu, jafnvel þótt gerðar verði smávægilegar breytingar á frv. sem yrðu þá gerðar í samráði við flm.
    Það kann að koma á óvart þegar sagt er að þessi hv. nefnd, sem á undanförnum árum hefur þurft að hittast mjög ótt og títt á síðustu vikum þinga, hefur ekki komið saman eftir páska ef ég man rétt, ekki einn einasti fundur hefur verið haldinn frá páskum í nefndinni. Liggja þó hjá nefndinni ýmis mál. Ég ætla ekki að svo stöddu að gagnrýna það eða ráðast að formanni nefndarinnar fyrir að hafa ekki haldið fund. Ég trúi ekki öðru en að formaður fjh.- og viðskn., hv. 1. þm. Norðurl. v., verði við þessari beiðni og taki jafnframt fyrir önnur mál sem víðtæk samstaða gæti náðst um, nema það sé niðurstaðan hjá hv. þm. að halda ekki fleiri fundi í nefndinni og þar með að skjóta loku fyrir að hægt sé að afgreiða jafnvel þau stjfrv. sem til nefndarinnar er vísað.
    Eitt þeirra mála sem væntanlega koma til nefndarinnar er frv. sem kom nokkuð seint fram á þinginu. Það er frv. um Áburðarverksmiðjuna, þ.e. áburðarverðið, og væri vissulega fengur í því að fá upplýsingar um það frá hv. formanni hvort hann ætlar sér að halda fund í nefndinni eða ekki. Ég skildi orð hans á þá leið, þegar hann talaði hér fyrr í þessari þingskapaumræðu, að hann ætlaði sér að halda fund, taka fyrir þetta mál, ræða þá fram komnar athugasemdir, ræða þá niðurstöðu sem kæmi frá starfsmönnum nefndarinnar, fjalla efnislega um þau atriði sem komin eru frá hæstv. fjmrh. og eiga samráð við hv. flm., sem eru allir fjárveitinganefndarmenn sem sæti eiga í þessari hv. deild.
    Ég vil að það komi hér skýrt fram að fulltrúar Sjálfstfl. í nefndinni hafa lýst yfir eindregnum stuðningi við þetta frv. og ég hygg að svo sé um fleiri hv. nefndarmenn. Auðvitað er það ekkert sjálfgefið að menn vilji taka á málinu nákvæmlega eins og lagt er til. Það hafa komið fram athugasemdir, en það má þó ekki verða til þess að þetta mál tefjist. Að leggja þetta mál síðan að jöfnu við ýmis frv. sem liggja í nefndinni frá einstökum þingmönnum er nánast út í hött. Vissulega eru þar frv. sem flutt eru af ýmsum þingmönnum, sum hver jafnvel af stjórnarþingmönnum einum saman, sem ættu nú að hafa greiða leið að hæstv. ríkisstjórn til þess að biðja

hana um að flytja slík mál í formi stjfrv. Það er kannski skiljanlegra að hv. stjórnarþingmenn hafi ekki áhuga á því að afgreiða slík mál og ýmis önnur mál, einfaldlega vegna þess að eðli málsins samkvæmt hlýtur það að vera sú leið sem fara á. Ef stjórnarþingmenn hafa verulegan áhuga á því að flytja mál sem komast í gegn, þá geta þeir snúið sér til hæstv. ríkisstjórnar.
    Það frv. sem hér er til umræðu var hins vegar mjög sérstaks eðlis. Það hafði farið fram mikil athugun á málinu í hv. fjvn. Ég held að flestum beri saman um það að gera þurfi breytingar á þessum málum og styrkja stöðu Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu.
    Virðulegur forseti. Ég leyfi mér að skilja ræðu hv. formanns nefndarinnar á þann veg að hann ætli sér að boða fund í nefndinni við allra fyrsta tækifæri og þá verði þetta mál eitt það fyrsta sem tekið verði fyrir. Og ég leyfi mér að skilja það svo, ef ekki koma fram mótmæli af hálfu formanns nefndarinnar, að hann muni beita sér fyrir því að málið fái þinglega meðferð og afgreiðslu í
nefndinni, jafnvel þótt hann sjálfur kjósi að greiða ekki götu frv. með stuðningi við það og þá með því að skrifa á nál. þeirra sem vildu standa að afgreiðslu málsins. Þetta finnst mér að þurfi að koma skýrt fram. Ég hef leyft mér að skilja ummæli hv. þm. á þennan veg en hann hefur að sjálfsögðu tækifæri til þess að staðfesta það hér enn frekar.