Grunnskóli
Föstudaginn 27. apríl 1990


     Frsm. menntmn. (Ragnar Arnalds):
    Herra forseti. Menntmn. hefur fjallað um stjfrv. um grunnskóla, 428. mál. Í frv. felast býsna mörg efnisatriði, þar á meðal um lengingu grunnskólans í tíu ár þannig að 1. bekkur verði fyrir sex ára börn.
    Í öðru grunnskólafrv. sem lagt var fram hér í hv. deild, 27. máli, kemur einnig fram svipuð stefna og fólst í þessu stjfrv. Fleiri hafa vakið máls á nauðsyn þessa og tel ég skylt að geta þess að þingmenn Kvennalista lögðu fram frv. í Ed. á síðasta þingi sem gengur í sömu átt.
    Niðurstaða nefndarinnar var sú að ekki væri möguleiki á að afgreiða stjfrv. um grunnskóla á þessu þingi. Hins vegar töldu nefndarmenn eðlilegt að taka þann þátt út úr frv. er varðar lögbindingu skólaskyldu sex ára barna og afgreiða hana fyrir þingslitin. Í því skyni flytur nefndin frv. um þetta efni og það er frv. sem ég er hér að mæla fyrir.
    Það er skoðun nefndarinnar að með því að færa núverandi forskóla sex ára barna inn í grunnskólann sé verið að svara kröfum tímans um aukinn þátt skólanna í uppeldi og fræðslu á þessu aldursstigi. Forskólanefnd á vegum menntmrn. lagði til árið 1981 að lögfesta fræðsluskyldu sex ára barna og stefna að skólaskyldu þess aldurshóps. Sérstakur starfshópur ráðuneytisins lagði til bæði árin 1984 og 1986 að komið yrði á skólaskyldu sex ára barna og þau þannig viðurkennd sem fullgildir nemendur grunnskólans. Undir þetta tóku allir þáverandi fræðslustjórar landsins.
    Ég vil sérstaklega láta þess getið að í þessu frv., sem nefndin stendur öll að og alger einhugur er um, er ekkert efnisatriði sem ekki varðar þetta að skólaskylda hefjist við sex ára aldur og skólinn sé tíu ára skóli. Nefndarmenn fóru mjög rækilega yfir frv. með fulltrúum menntmrn. og gengu úr skugga um að ekkert annað atriði fylgdi þarna með.
    Ég vil sérstaklega láta þess getið að 13. gr. frv., um forskóla fyrir fimm ára börn, er í fullu samræmi við gildandi grunnskólalög þar sem talað er um forskóla fyrir fimm og sex ára börn. Það þótti eðlileg samræming miðað við þessa breytingu sem hér er verið að gera að breyta þessum orðum í forskóla fyrir fimm ára börn. Með þessari afgreiðslu er hins vegar ekki verið að taka neina endanlega afstöðu til þessa máls sem er umdeilt. Við í hv. menntmn. urðum varir við það að talsmenn fóstra höfðu nokkuð við þessa niðurstöðu að athuga. Auðvitað er það kjarni málsins að við erum hér eingöngu að fjalla um sex ára börnin og hér var því einungis verið að gera breytingu á 74. gr. grunnskólalaganna þessu til samræmis. Þetta vildi ég að kæmi skýrt fram við 1. umr. þessa máls.
    Ég ítreka það sem ég hef þegar sagt að nefndin stendur einhuga að frv. Það liggur því í hlutarins eðli að nefndin gerir ekki tillögu um að málið sé sent til nefndar.