Grunnskóli
Föstudaginn 27. apríl 1990


     Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Virðulegi forseti. Hér er til 1. umr. frv. til laga um breytingu á lögum um grunnskóla sem felur í sér skóla- og fræðsluskyldu sex ára barna. Eins og fram kom hjá frsm. menntmn. deildarinnar, hv. 4. þm. Norðurl. v., var alger einhugur um þetta mál í nefndinni. Ég rifja upp að hæstv. menntmrh. flutti frv. til laga um grunnskóla fyrr á þessu þingi sem fékk ítarlega umræðu þegar það var til 1. umr. hér í deildinni. Nefndinni hefur ekki gefist tími til að fjalla um það frv. af þeirri alúð sem þarf að gera um svo veigamikið mál. Þess vegna varð niðurstaðan sú að taka út úr einn þátt þessa máls, þátt sem allir eru sammála um, þ.e. að lengja skóla- og fræðsluskylduna þannig að hún nær nú til sex ára barna en áður til sjö ára barna.
    Í þessu sambandi vil ég rifja upp að mjög snemma á þessu þingi fluttu þrír þm. Sjálfstfl. frv. til laga um breytingu á lögum um grunnskóla. Þetta er 27. mál þingsins og þskj. ber sama númer. Flm. voru hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir og Þorsteinn Pálsson auk mín. Þar eru gerðar tillögur um ýmsar breytingar á grunnskólalögunum. Þær breytingar eiga rætur að rekja til þess að í stefnuyfirlýsingu og starfsáætlun ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar var ítarlega fjallað um fjölskyldu- og jafnréttismál. Þar var m.a. áréttað að unnið yrði að því að treysta stöðu fjölskyldunnar með markvissri fjölskyldustefnu fyrst og fremst með velferð barna fyrir augum.
    Í ágúst 1987 skipaði þáv. hæstv. forsrh., Þorsteinn Pálsson, sérstaka samstarfsnefnd ráðuneyta um fjölskyldumál. Fulltrúar fjmrn., menntmrn., félmrn. og heilbr.- og trmrn. áttu sæti í þessari nefnd og svo sérstaklega skipuð af forsrh. Inga Jóna Þórðardóttir sem var formaður nefndarinnar. Í ágúst 1988 skilaði þessi nefnd áfangaskýrslu um skóla- og dagvistarmál og þar voru settar fram ítarlegar tillögur um þessa málaflokka.
    Það frv. sem ég gat um, þ.e. 27. mál þessa þings, er byggt á tillögum nefndarinnar um skólamál. Eitt af því sem þessi nefnd lagði til var að breyta skólaskyldunni. Þess vegna er 1. gr. þessa frv. þm. Sjálfstfl. svohljóðandi, með leyfi forseta:
    ,,Skylt er ríki og sveitarfélögum að sjá um að haldinn sé skóli fyrir öll börn og unglinga á aldrinum 6--16 ára, eftir því sem nánar segir í lögum þessum. Skóli þessi nefnist grunnskóli og er öllum börnum og unglingum á nefndum aldri skylt að sækja skóla. Undanþágu má þó veita frá skólaskyldu, sbr. 5., 7. og 8. gr.``
    Menntmn. hefur haft þetta mál til meðferðar ásamt því frv. sem hæstv. menntmrh. flutti hér í vetur og niðurstaða hennar, eftir athugun á báðum þessum frv., er sú að flytja núna sérstakt frv. um skólaskyldu sex ára barna.
    Það er nú reyndar svo að mjög mörg sveitarfélög hafa þegar tekið upp kennslu fyrir sex ára börn. Ég hygg að langflest þéttbýlissveitarfélögin hafi þegar gert það og mörg dreifbýlissveitarfélögin einnig. Hins

vegar hefur verið mikið misrétti í því hversu langan tíma sex ára börnin hafa fengið og á þetta frv. mjög að bæta úr því og jafna stöðu sex ára barna.
    Nefndin fékk sérstaklega á sinn fund fulltrúa frá sveitarfélögunum til þess að ræða þennan þátt málsins og þá sérstaklega með tilliti til þess hvort verið væri að leggja einhverjar auknar byrðar á sveitarfélögin með frv. Það kom fram hjá fulltrúum sveitarfélaganna, þ.e. formanni Sambands ísl. sveitarfélaga, Sigurgeiri Sigurðssyni, sem þarna var mættur, og frá Birni Halldórssyni sem er forstöðumaður skólamálaskrifstofu Reykjavíkurborgar, að þessi þáttur málsins hefði ekki í för með sér aukin útgjöld fyrir sveitarfélögin. Hins vegar væru mörg önnur atriði í grunnskólafrv. hæstv. menntmrh. sem hefðu í för með sér mikla aukningu á útgjöldum.
    Ástæðan er sú að sveitarfélögin, eins og ég sagði, hafa þegar sjálf tekið upp þessa kennslu fyrir sex ára börnin og kostað hana að miklu leyti. Nú breytist það því að með skólaskyldunni fá sveitarfélögin hluta af þessum kostnaði uppi borinn, þ.e. ríkið greiðir núna, eftir að þessi lög taka gildi, kennaralaun og laun skyldra starfsmanna. Það var að vísu einhver vafi í huga sumra þeirra manna sem komu til viðtals við okkur um þetta atriði, hvort þarna væri um að ræða aukakostnað fyrir dreifbýlissveitarfélögin vegna skólaakstursins. Niðurstaða þeirra varð þó sú, eftir að hafa rætt þetta, að þar sem skólaakstur væri þegar stundaður í dreifbýlissveitarfélögunum fyrir yngri börnin, þ.e. sjö ára og upp úr, og væri oftast sérstaklega miðaður við yngri börn og þá tvær ferðir oft á dag um héraðið væri auðvelt að sameina
þann akstur þeim sem þyrfti að taka upp vegna sex ára barna þannig að þarna yrði væntanlega ekki um verulega aukinn kostnað að ræða.
    Frv. þetta lítur kannski út fyrir að vera nokkuð flókið þegar haft er í huga að hér er einungis verið að breyta einu atriði í sambandi við grunnskólalögin, þ.e. skólaskyldu sex ára barna. Ástæðan fyrir því að það eru brtt. við svo margar greinar er sú að kennsla þessa aldursflokks, þ.e. yngsta aldursflokksins í grunnskólunum, og málefni hans koma fyrir í allmörgum greinum og þess vegna varð að breyta svo mörgum greinum sem raun ber vitni.
    Nefndin fór hins vegar mjög rækilega yfir það, eins og fram kom hjá hv. frsm., að það er ekki um neinar aðrar breytingar að ræða á grunnskólalögum, því er óhætt að treysta. Það er enginn vafi á því að það að lögfesta sex ára skólaskyldu er mjög þýðingarmikið mál fyrir fjölskyldurnar í landinu og fyrir börnin sem á þessum aldri eru. Þess vegna hefur nú náðst jafnvíðtæk pólitísk samstaða um þetta efni og raun ber vitni. Hitt er svo annað mál og þess lét ég getið við fyrstu umræðu þessa máls að ég hefði talið að þegar nú er verið að lengja grunnskólann í tíu ár, úr því að vera níu ára skóli í tíu ára skóla, hefði þurft að fylgja meira með af hálfu menntmrn. Það hefði þurft að fylgja með nákvæm úttekt á grunnskólanáminu og skipulagsbreyting þannig að hér væri ekki aðeins um lengingu skólaskyldunnar að

ræða heldur þyrfti einnig að endurskipuleggja námið og þá með tilliti til þess að við erum með okkar börn og unglinga lengur í skóla en flestar aðrar þjóðir.
    Ég minntist á það við 1. umr. þessa máls að þegar ég var í menntmrn. skipaði ég sérstaka nefnd og í henni voru fulltrúar frá öllum skólastigum, þ.e. grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla, til þess að fara einmitt rækilega ofan í þennan þátt, jafnvel að stokka eitthvað upp á milli grunnskólans og framhaldsskólans, en þá með það að markmiði hvort ekki væri möguleiki að við gætum fylgt fordæmi annarra þjóða og íslenskir unglingar gætu lokið framhaldsnámi, a.m.k. einu, hugsanlega tveimur árum yngri en nú er. Og þá vitna ég til þess sem aðrar þjóðir hafa gert í þessum efnum. Mér skildist þá á hæstv. menntmrh. að þessi nefnd væri enn að störfum og mundi ljúka störfum innan skamms þannig að endurskipulagning af þessu tagi gæti því væntanlega fylgt fljótlega í kjölfarið. Ég ítreka hins vegar að ég hefði talið æskilegt að þessi endurskipulagning kæmi við þessa breytingu, þ.e. þegar verið er að lengja grunnskólann í tíu ára skóla.
    Eins og fram kom hjá hv. frsm. er óþarfi að málið fari til nefndar þar sem um þetta er full samstaða í nefndinni og nefndin sjálf flytur málið. Hins vegar vildi ég láta þessar athugasemdir koma fram nú við 1. umr. þessa máls.