Tilraunastöð Háskólans í meinafræði
Föstudaginn 27. apríl 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Frv. til laga um Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum hefur þegar sætt meðferð í hv. Ed. og þar var full samstaða um málið. Á því voru gerðar lítils háttar breytingar frá því sem það var upphaflega er það kom frá ríkisstjórninni og snertir það ákvæði frv. um ráðningu forstöðumanns stofnunarinnar. Í frv. er gert ráð fyrir því að forstöðumaður verði ráðinn til sex ára í senn og megi háskólaráð endurráða hann að fengnu áliti stjórnar Tilraunastöðvarinnar. Hann er jafnframt prófessor við læknadeild Háskóla Íslands með takmarkaðri kennsluskyldu samkvæmt nánari ákvörðun háskólaráðs. Við meðferð málsins í hv. Ed. varð sú breyting á frv. að bætt var inn nýju ákvæði til bráðabirgða þar sem gert er ráð fyrir því að sá forstöðumaður Tilraunastöðvarinnar á Keldum sem starfar þegar lög þessi taka gildi geti haldið forstöðumannsstöðunni áfram í allt að sex ár frá gildistöku laganna. Um ráðningu forstöðumanns í embætti prófessors við læknadeild Háskóla Íslands fari að öðru leyti eftir háskólalögum. Síðan fari um starfsemi forstöðumanns og ráðningu, og endurráðningu hugsanlega, samkvæmt því sem segir í 5. gr. frv.
    Frv. er samið af nefnd sem skipuð var í mars 1989 og í áttu sæti Guðrún Agnarsdóttir, Haraldur Ólafsson og Jón Höskuldsson. Frv. byggði á nál. svokallaðrar Keldnanefndar sem var skipuð í maí 1987 af þáv. menntmrh. og starfaði undir forystu Guðmundar Eggertssonar prófessors sem var tilnefndur af raunvísindadeild Háskóla Íslands.
    Hér er um að ræða algjörlega nýjan lagaramma fyrir Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum. Það má glöggt sjá það af gildandi lögum sem fylgja með frumvarpsskjalinu, sem fskj. I, að það var orðin brýn þörf á því að endurskoða lögin því þau lög sem í gildi eru frá 28. febr. 1947 eru um flest úrelt orðin.
    Með hliðsjón af því hversu gott samstarf tókst um afgreiðslu málsins í hv. Ed. tel ég ástæðulaust að orðlengja frekar um málið hér á þessu stigi, herra forseti, og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.