Fullorðinsfræðsla
Laugardaginn 28. apríl 1990


     Forseti (Jón Helgason):
    Hæstv. menntmrh. kom með tillögu um að vísa frv. til félmn. til þess að hægt væri að ræða það með frv. sem því væri nátengt. Vafalaust eru rök fyrir því þó kannski hefði verið réttara og eðlilegra að vísa hinu málinu til menntmn., þar sem hún hefði frekar átt að fá það til meðferðar. Ég mun samt bera þessa tillögu menntmrh. undir deildina, hvort hún vill að þessu máli verði að þessu sinni, vegna þessara aðstæðna, vísað til félmn.
    Frv. vísað til félmn. með 11 shlj. atkv.