Veiting ríkisborgararéttar
Laugardaginn 28. apríl 1990


     Frsm. allshn. (Jón Helgason):
    Hæstv. forseti. Í hv. Nd. voru gerðar þær breytingar á frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar að lagt var til að fjórir nýir einstaklingar fái ríkisborgararétt. Eftir viðræður við nefndarmenn í allshn. Ed. er nefndin sammála um að fallast á þessa breytingu og leggur til að frv. verði samþykkt eins og það kemur frá Nd.