Guðrún Helgadóttir:
Hæstv. forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. heilbr.- og trn. Ed. fyrir gott starf við breytingar á þessu frv. sem mikill ágreiningur var um. Flest sýnist mér vera þar mjög til bóta. Ég tel að það sé heppilegt og gott að búið er að skipta Reykjavík í fjögur heildarheilsugæsluumdæmi eða svæði fremur en, eins og áður var gert ráð fyrir, að lögsetja það að í Reykjavík skuli vera 13 heilsugæslustöðvar.
Ég vil hins vegar koma því á framfæri í því sambandi að mér sýnast þær nú vera 10 alls. En af þeim er liður 2.3 í miðbæjarumdæmi e.t.v. óþarfur þar sem um hefur verið samið við heilsugæslulækna að annast það hverfi. Sama má kannski segja um lið 3.1 í austurbæjarumdæmi, svo að talan kemur ekki að sök. Ég held að það sé mjög mikilvægt að ekki sé ráðist í að byggja meira en þörf er á og bendi þar með á að farið verði þar varlega í sakir.
Þá fagna ég sérstaklega því sem segir á bls. 2 í þskj. 1053 að þrátt fyrir skiptingu Reykjavíkur í heilsugæsluumdæmi geti íbúar borgarinnar jafnan valið sér heilsugæslulækni eða heimilislækni utan heilsugæslustöðva.
En ég skal ekki taka tíma manna með því að fara yfir þessar breytingar. Það er hins vegar áhyggjuefni okkar Reykvíkinga, eins og hæstv. ráðherra kom hér að, ef til stendur að fara að hrófla við starfsemi Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Þar vil ég benda á að það er rétt hjá hæstv. ráðherra að það er afar erfitt að skilja 16. lið, þar sem talað er um breytingar á ákvæðum til bráðabirgða. Þar er beinlínis talað um að leggja Heilsuverndarstöð Reykjavíkur niður. Eins og hæstv. ráðherra minntist á hefur þingmönnum Reykvíkinga, og ég hygg þingmönnum öllum jafnvel, borist bréf frá heilbrigðisráði Reykjavíkurborgar þar sem því er harðlega mótmælt að sú starfsemi sem fram hefur farið um áratuga skeið í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur leggist niður eða við henni sé hróflað á nokkurn hátt. Og ég vil leyfa mér að benda á bókun sem
gerð var í heilbrigðisráði Reykjavíkurborgar. Hana lögðu fram Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfulltrúi, Borghildur Maack og Margeir Daníelsson og þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
,,Við teljum nauðsynlegt að Heilsuverndarstöð Reykjavíkur gegni samræmingarhlutverki í ákveðnum þáttum heilsuverndar, svo sem heilsugæslu í skólum og barnavernd. Jafnframt verði þar áfram sinnt atvinnusjúkdómum, kynfræðslu, lungna- og berklavörnum. Frá Heilsuverndarstöðinni verði einnig unnið að þróunarverkefnum í heilsuvernd.``
Meiri hluti tók undir þessa bókun og er hún felld inn í ályktun heilbrigðisráðs Reykjavíkurborgar sem Skúli G. Johnsen undirritar og enginn ágreiningur er um.
Eins og allir Reykvíkingar vita hefur farið fram í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur merkileg starfsemi um árabil, bæði hvað varðar barnavernd, mæðravernd og ekki síst lungna- og berklarannsóknir sem sjálfsagt
eiga sér tæpast jafnoka annars staðar. Það segir sig sjálft að ef farið er að færa þá starfsemi út í heilsugæsluumdæmin væri það kostnaðaraukinn einn og engum til góðs. Ég vil því biðja hv. heilbr.- og trn. Nd. að skýra a.m.k. mun betur ákvæðin varðandi Heilsuverndarstöðina ef það er rétt, sem hæstv. ráðherra segir, að ekki standi til að breyta starfsemi hennar á nokkurn hátt. En til þess held ég að verði að gera þetta ákvæði æðimiklu skýrara því að þar er einfaldlega talað um að leggja starfsemina niður við árslok 1991. Því hljóta Reykvíkingar að mótmæla harðlega og ég vil biðja hv. nefnd að taka þetta atriði til rækilegrar athugunar.
Að öðru leyti get ég lýst mig fylgjandi öllum þeim breytingum sem hér hafa verið gerðar. Ég tel þær til mikilla bóta og hafa í stuttu máli bjargað mjög frv. sem annars var meira en umdeilanlegt.
Þessu vildi ég koma á framfæri, hæstv. forseti, og hef lokið máli mínu.