Stefán Valgeirsson:
Virðulegi forseti. Ég vil minna hv. síðasta ræðumann á að það hefði nú orðið þröngt fyrir dyrum víða ef ekki hefði verið reynt að rétta af eitthvað af því ranglæti sem gerðist á tímum fyrstu ríkisstjórnar sem tók við eftir síðustu kosningar. Hann einfaldar nú málið nokkuð mikið fyrir sér. (Gripið fram í.) Það er ekki sannleikur, það er ekki hinn rétti sannleikur. Það er kannski hans rétti skilningur, en það er ekkert við því að gera ef það er þannig.
Ég vil segja við hv. 1. þm. Reykv., hann er nú víst ekki hér, að það er alveg eins hægt að lækka vexti með handafli eins og að hækka þá, eins og gert var, en ekki meira um það.
Ég er ekki sammála hv. 1. þm. Suðurl. að stjórn Áburðarverksmiðjunnnar hafi farið rétt að. Þeir höfðu fyrir framan sig bréf frá hæstv. landbrh. um það að hann mundi sjá um það að, ef farið yrði eftir þessari ósk að hækka áburðarverðið ekki nema um 12% --- það liggur í orðum bréfsins að hann lofar því --- að bæta það upp. Ef ég hefði verið í stjórn verksmiðjunnar þá hefði ég frestað að taka ákvörðun um verðið og krafist þess að fá það frá ríkisstjórninni, tryggja það að þessir fjármunir kæmu. Það hefðu verið rétt vinnubrögð að mínu áliti. Þá hefði reynt á það hvort það bréf er marktækt sem er skrifað 1. mars af landbrh. þar sem segir að ríkisstjórnin samþykki að beina því til stjórnar Áburðarverksmiðju ríkisins að hækkun áburðarverðs verði ekki meiri en 12%. Þessi samþykkt er gerð með því fororði að landbrh. áskilur sér rétt til þess að taka málefni Áburðarverksmiðjunnar upp í ríkisstjórninni leiði þessi verðákvörðun af sér að tap verði á rekstri verksmiðjunnar. Það er alveg rétt að þetta er ekki skýlaust. En það voru rétt vinnubrögð að krefja um ákveðin svör. Það var búið að gera kjarasamninga, ríkisstjórnin var búin að heita því að áburðarverðið færi ekki yfir 12% og auðvitað átti hún að standa við það. Menn eiga að standa við orð sín, menn eiga að gera það. Og mér þykir dálítið einkennilegur málflutningur hér á hinu háa Alþingi ef menn koma hér upp hver jafnvel á fætur öðrum og átelja það að menn standi við orð sín. ( Gripið fram í: Gera það rétt.) Það er nú afstætt þetta að gera rétt, ekki síður en með sjóðina sem þú varst að tala um áðan. Það er nú afstætt. Það hefði kannski líka þurft að líta til þeirra sem eru gjaldþrota í stórum stíl. Það er ekki rétt hvernig með þá hefur verið farið. Réttlætið er stundum dálítið einkennilegt.
Hins vegar er ég ekki sammála hæstv. forsrh. um að þó að verðbólgan fari niður í 7%, ég er ekki farinn að sjá það, leiði það af sér að þessi 12% hækkun nægi. Ég hygg að það sé nær lagi að það hefði þurft 18%. Ég hygg það þó að það sé bara tilfinning en ekki útreikningur. En ríkisstjórnin á að standa við þetta fyrirheit sem hún gaf í kjarasamningum, og í samningum við bændur, að verðið færi ekki yfir 12%.