Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Laugardaginn 28. apríl 1990


     Páll Pétursson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Því miður er hæstv. fjmrh. ekki viðlátinn. Hann er norður á Sauðárkróki. Þar eru helst til margir alþýðubandalagsmenn og ég hygg að hann eigi fullt erindi þangað. Hann tilkynnti í auglýsingu að hann væri að fara til að svara spurningum þeirra um framtíðina og hann ætlar að gera það, samkvæmt sömu auglýsingu, í safnaðarheimilinu á Sauðárkróki. Ég er prýðilega ánægður með að hafa hann þar. Hæstv. fjmrh. kemur væntanlega til starfa á mánudag og þá getur hv. 1. þm. Suðurl. lokið ræðu sinni. Samkomulag hefur orðið um að fjh.- og viðskn. vinni í þessu máli á mánudagsmorgni og ég vil leggja það til við forseta að hann verði við ósk hv. 1. þm. Suðurl. og fresti þessari umræðu. Það er hægt að ljúka henni á mánudag án þess að tefja hér þingstörf að neinu leyti.