Ólafur G. Einarsson (um þingsköp) :
Herra forseti. Ég hef engu við þetta að bæta, en ég vil aðeins upplýsa að fleiri flokkar hafa auglýst fundi á þessum degi en Alþb. Ég vil nefna að Sjálfstfl. hafði auglýst fund og ráðstefnu um utanríkismál. Þeirri ráðstefnu var frestað vegna þess að þing var hér að störfum. Það er því ekki til of mikils ætlast þótt stjórnarflokkarnir eða einstakir ráðherrar þeirra geri annaðhvort, að fresta fundum sínum eða, ef þeir ekki vilja gera það, þá verði frestun á þeim málum hér í þinginu sem undir þá ráðherra heyra.