Frumvarp um yfirstjórn umhverfismála
Laugardaginn 28. apríl 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
    Herra forseti. Ég get staðfest það sem hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði að ræða mín sem ég ætla að flytja, hvenær sem hún verður flutt, er stutt. Ég mun gera grein fyrir þeim brtt. sem ég hef flutt, en ég tel þó eðlilegra, þar sem þess er krafist að hæstv. umhverfisráðherra verði við, að ég bíði með þá ræðu þar til umræða verður um málið. Ég vona að það verði ekki síðar en nk. mánudag, en fyrr verður það ekki að sjálfsögðu.