Heilbrigðisþjónusta
Laugardaginn 28. apríl 1990


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Það mál sem hér er komið á dagskrá og kemur frá hv. Nd. varðar breytingu á gildistöku laganna. Gert hafði verið ráð fyrir því að lögin tækju gildi 1. jan. 1990 en þar sem afgreiðsla frv. er komin langt fram yfir þann tíma hefur eðlilega þurft að breyta þessu. Nú er lagt til að lögin taki gildi við afgreiðslu frv. Ég legg til að þessi breyting verði samþykkt.