Frsm. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá utanrmn. sem er á þskj. 1086 og varðar till. til þál. um að staðfesta breytingar á samningi um stofnun Fríverslunarsamtaka Evrópu vegna fríverslunar með fiskafurðir. Nál. er svohljóðandi:
    ,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og leggur til að hún verði samþykkt.``
    Undir nál. skrifa meðlimir utanrmn., þar af tveir með fyrirvara, hv. þm. Hjörleifur Guttormsson og Kristín Einarsdóttir. Ég tel ekki þörf á að hafa fleiri orð um nál. að sinni.