Jóhann Einvarðsson:
Hæstv. forseti. Hér eru til meðferðar tvær tillögur um hvernig meðhöndla skuli tillögu frá forsetum Alþingis sem upphaflega var um að kaupa Hótel Borg, og ætla ég ekki að fara út í neinar efnisumræður um það, en ég ásamt fleiri nefndarformönnum hér í hv. Alþingi liggjum oft undir mikilli pressu og jafnvel ámæli í þingskapaumræðum eða utandagskrárumræðum, að mál gangi hægt fyrir sig.
Það hefur legið ljóst fyrir frá upphafi vega, held ég, að hér í Alþingi voru mjög skiptar skoðanir um tillögu forsetanna, bæði á síðasta þingi og á þessu þingi. Ég vil að það komi fram að ég lýsi óánægju minni með það að þessi afgreiðsla eða einhver afgreiðsla frá fjvn. skyldi ekki koma fram miklu, miklu fyrr, þannig að Alþingi hefði getað tekið hreina afstöðu til þess sjálft hvort það ætti að kaupa þetta eða eitthvert annað hús. Ég get vel fellt mig við þann tillöguflutning sem hér kemur fram, en ég held að það hafi í raun ekki þurft að bíða í tæpa fimm mánuði að afgreiða úr nefnd þingsins tillögu frá þremur forsetum þingsins sem reyndar var flutt í fyrra líka og núna verður að afgreiðast í öðru ljósi vegna utanaðkomandi áhrifa. Ég vil bara vekja athygli á þessu, að gefnu tilefni, sem við ýmsir aðrir formenn þingnefnda liggjum undir ámæli fyrir.