Ólafur G. Einarsson:
Hæstv. forseti. Ég hélt satt að segja að við værum hér að ræða um húsnæðismál Alþingis en ekki umfangsmikinn veitingarekstur Reykjavíkurborgar.
En ég vil aðeins segja út af Hótel Borg og afstöðu minni til hugsanlegra kaupa á Hótel Borg á sínum tíma að mér þótti koma til greina að Alþingi keypti Hótel Borg þegar og ef það lægi fyrir að ekki yrði rekið þar hótel áfram. Ég taldi það þá geta verið skynsamlega bráðabirgðaráðstöfun fyrir Alþingi að kaupa Hótel Borg, en ekki í einhverju stríði við borgaryfirvöld í Reykjavík. Ég skil vel þá afstöðu ýmissa, sem fara með borgarmálefni Reykjavíkur, hvað þeir leggja mikið upp úr því að hér sé hótel á miðbæjarsvæðinu. En ég hélt satt að segja, eins og áreiðanlega fleiri, að það lægi fyrir að það væri enginn kaupandi að Hótel Borg sem mundi leggja það mikla fé sem þyrfti í þetta húsnæði til þess að gera það að sæmilega útbúnu hóteli.
Nú hefur þetta hins vegar breyst. Reykjavíkurborg hefur keypt þetta hús og tekið þannig þennan kaleik frá okkur. Ég held þess vegna að við þurfum ekki að vera að eyða tíma í það núna að ræða um Hótel Borg sem einhvern möguleika til þess að leysa húsnæðismál Alþingis.
Nokkuð hvassri gagnrýni hefur verið beint hér að fjvn. og það vekur athygli að það eru einkum þingmenn Framsfl. sem beina spjótum sínum að fjvn. Ég veit ekki hvort þeir eru sérstaklega að ráðast að formanninum, hv. þm. Sighvati Björgvinssyni og þá væntanlega hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni. Ég veit það ekki. Þeir hafa verið alveg menn til þess að grípa til varna. Ég tek ekkert sérstaklega undir þessa gagnrýni og held ekki að fjvn. hafi tekið sér neitt það vald sem hún ekki hefur. Þessari tillögu var einfaldlega og eðlilega vísað til hv. fjvn. Ef við ætlum að fara að gagnrýna fjvn. sérstaklega fyrir að afgreiða þetta mál seint, og það má svo sem gera, þá verðum við að gagnrýna líka fleiri nefndir. Það hefur verið nefnd hér alveg sérstaklega ein. Það er hv. sjútvn. Ed. sem er núna með stærsta mál þingsins og hefur ekki, að ég best veit, enn þá komið því frá sér nema þá það hafi gerst í dag.
Já, við erum hér að ræða húsnæðismál Alþingis og það er sannarlega eitt af stærri málum þingsins. Það eru húsnæðismál þess sjálfs sem eru auðvitað þinginu til skammar og hafa verið það lengi. Þar tek ég undir með hæstv. forseta Nd. sem talaði hér áðan. Ég veit hins vegar ekki hvort þessi málatilbúnaður sem við erum hér að ræða um, þessa upphaflegu tillögu og brtt. sem hér liggja fyrir, gefi okkur tilefni til þess að ræða húsnæðismál Alþingis eins og við þyrftum að gera. Við erum í raun og veru aðeins að ræða hér um bráðabirgðaráðstafanir. Ef allt væri með felldu hér á hv. Alþingi þá hefði svo sem vel mátt styðja þessa tillögu meiri hl. fjvn. að heimila forsetum Alþingis að ganga til samninga um kaup eða leigu á húsnæði fyrir Alþingi. En hér er bara ekki allt með felldu. Ég get ekki fallist á það að fela hæstv. forsetum Alþingis að
ganga til kaupa á einhverju húsnæði hér í kring á sama tíma og hæstv. ríkisstjórn er að leggja fyrir Alþingi alls konar tillögur um niðurskurð hér og þar á hinum mikilvægustu málum, en síðan á þingið að gefa forsetunum einhverja óútfyllta ávísun, án þess að nokkuð hafi verið séð fyrir fjárveitingu í þessu skyni. Menn verða þarna að vera samkvæmir sjálfum sér og þess vegna lýsi ég yfir stuðningi við tillögu minni hl. fjvn.
Raunar má kannski segja, eins og ég held að hafi komið fram í máli einhvers ræðumanna hér fyrr í dag, að það sé tímaeyðsla að vera að ræða þetta. Í raun og veru hafa forsetar Alþingis stöðuumboð til þess að kanna möguleika á úrbótum í húsnæðismálum Alþingis, en þeir hafa engar heimildir til þess að kaupa. En ég veit að þetta voru þeir að gera. Þetta voru hæstv. forsetar að gera þegar þeir voru í viðræðum við eigendur Hótel Borgar og komu með tillöguna í samræmi við þá niðurstöðu sem þeir höfðu fengið í þeim viðræðum. En nú er það sem sagt ekki lengur á dagskrá.
Ég held að það væri gagnlegt fyrir okkur að fá svolítið gleggri upplýsingar um það hvað hefur verið samið um við borgaryfirvöld í Reykjavík um nýtingu þeirra lóða sem Alþingi á. Ég held að það væri gagnlegt að fá það upp á borðið nú strax. Ég segi það vegna þess að mér finnst kominn tími til, ég veit að sá tími er ekki í dag og hann er ekki á þessu þingi, fyrir Alþingi að taka endanlega afstöðu til húsbygginga og hætta þessu tali um sífelldar bráðabirgðaráðstafanir. Við vorum komnir nokkuð áleiðis hér um árið. Samkeppni hafði farið fram. Það höfðu farið fram rannsóknir hér á svæðinu og fé hafði verið veitt til hönnunar þeirrar byggingar sem fyrirhuguð var, en aldrei beint leyfi Alþingis til þess að byggja, það skorti. Ég held að Alþingi ætti nú á haustdögum, eða næst þegar það kemur saman, að ganga endanlega frá ákvörðun um að byggja yfir þingið.
Ég spurði um samninga sem kunna að hafa verið gerðir um nýtingu þeirra lóða sem Alþingi á hérna. Ég spyr líka: Hefur það komið fram í viðræðum við borgaryfirvöld hvort eitthvað er því til fyrirstöðu að rífa þessa ömurlegu húsaröð sem er hér við Kirkjustrætið og Alþingi á og er því líka til skammar?
Ég veit að það hefur komið fram tillaga í borgarstjórn um að þessi hús fái að standa, verði endurbyggð í þeirri mynd sem þau eru nú og friðuð. Hvað hefur komið fram í viðræðum við borgaryfirvöld um þetta atriði? Ef eitthvað svoleiðis er á ferðinni og t.d. lægi fyrir á haustdögum að Alþingi fengi ekki að byggja þarna, þá verður að taka mið af því. Þá er kannski komin upp sú staða, sem einhverjir hafa nefnt hér, að borgaryfirvöld kæri sig kannski ekkert um að hafa þingið hérna. Þetta þurfum við allt saman að fá að vita.
Hv. þm. Árni Gunnarsson spurði hér hverjar væru tillögur þeirra sem væru á móti kaupunum á Hótel Borg. Ég þarf kannski ekki að svara þessu vegna þess
að ég var aldrei beint á móti þeim kaupum, en ég vil samt fá að svara. Mín tillaga er þessi, að þingið taki ákvörðun um byggingu ef slíkt byggingarleyfi verður gefið út. Þá er ég ekki endilega að tala um að byggja eftir þeirri teikningu sem við vorum hér með fyrir framan okkur fyrir nokkrum missirum. Það getur allt saman staðið til endurskoðunar.
Svo finnst mér að við eigum ekki að vera að eyða löngum tíma í að tala hér út frá því að borgarstjóri hafi leikið eitthvað á Alþingi. Ég held að við verðum að taka undir það sem hæstv. forseti Sþ. sagði þegar borgarstjóri hafði gert kauptilboðið í Hótel Borg: Hann er einfaldlega klókari stjórnmálamaður en þeir sem hafa verið að véla um húsnæðismál Alþingis.