Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Ég vil benda hv. þm. á að enginn hafði beðið um orðið þannig að það var ekki eðlilegt að forseti legði til að fundinum yrði frestað. Það er enginn á mælendaskrá. Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs og því er þessari umræðu lokið. ( ÞK: Ef umræðunni verður haldið áfram þá óska ég eftir orðinu. Það var það sem ég var að biðja um.) Nú vil ég biðja forvera minn, hv. 4. þm. Vestf., að skilja að forseti hefur þegar lýst umræðunni lokið vegna þess að enginn var á mælendaskrá. Nú viðurkennir forseti að hann kann ekki lengur ýtrustu þingsköp. Vill þá hv. þm. að ... Ja, ég held að ég verði að gefa hv. þm. orðið. Ég lít svo á að þessari umræðu sé lokið.