Þorv. Garðar Kristjánsson (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Mér er nú þvert um geð að vera að tala svona mikið um þingsköp en mér er nauðugur einn kostur. Málið er einfaldlega það, og ég endurtek það ef hæstv. forseti vildi skilja það, að í minni ræðu áðan þá var óskað eftir því, ég skildi það, að ég stytti ræðu mína eða umræðunni yrði frestað. Ég varð við ósk forseta um að stytta ræðu mína. Ég reiknaði þá með að umræðunni yrði frestað eftir mína ræðu, en umræðan hélt áfram. Áður en hæstv. forseti sleit umræðu bað ég um orðið. Og ég mælist nú til þess að hæstv. forseti fari ekki að brjóta þingsköp með því að neita um orðið þeim sem biður um orðið og ekki heldur að brjóta þingsköpin á þann hátt að halda því fram að það hafi verið búið að ljúka umræðu og síðan sé hægt að taka hana upp aftur. Ég leiðrétti það líka sem kom fram hjá hæstv. forseta, eins og að ég hefði talað tvisvar í því dagskrármáli sem um ræðir og ég væri að biðja um orðið í þriðja sinn. Ég var að biðja um orðið í annað sinn. Ég hef haldið eina ræðu.