Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseti mun til samkomulags fresta þessum fundi og vill upplýsa að honum verður fram haldið kl. hálfsjö. Að honum loknum hefst fundur í efri deild, og raunar neðri deild einnig, en ætlunin er að fresta fundinum í neðri deild til kl. hálfníu í kvöld.
Nú, það berast þær upplýsingar að fundurinn í neðri deild hefjist einnig kl. hálfsjö eins og fundur í efri deild. Þá er umræðu frestað og fundinum einnig frestað til kl. hálfsjö.