Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti bar þetta undir embættismenn þingsins sem bentu á að venja væri að þar sem um tvær tillögur væri að ræða sem báðar orðuðu tillögutextann að nýju væri sú tillagan sem fyrr væri fram komin borin upp fyrst en þess utan þótti efni brtt. meiri hl. fjvn. ganga lengra þannig að menn töldu tvær ástæður til þess að bera þá tillögu upp fyrst. Forseti vill hins vegar taka fram að það er honum ekki mikið mál hvor tillagan yrði borin upp fyrst, nema það að ég held að það sé í samræmi við ýtrustu þingsköp að fara að svo sem ég sagði.