Pálmi Jónsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegur forseti. Að mínum dómi liggur það fyrir að tillaga minni hl. felur í sér meira frávik frá upphaflegri tillögu og gengur því lengra í þá átt að breyta þeirri tillögu sem fyrir liggur í þinginu. Því ætti hún að berast upp fyrst og á undan þeirri tillögu sem gengur skemur í því að breyta þeirri tillögu sem fyrir liggur. Mín niðurstaða er því sú að tillaga minni hl. eigi að berast upp fyrst.