Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti óskar eftir að fá að gera þriggja mínútna hlé og ræða þetta mál þar sem forseti er enn sannfærður um að hann hafi úrskurðað rétt fyrir stundu síðan. Nú vil ég biðja hv. þm. að hafa þolinmæði til að sitja fundinn til enda. --- [Fundarhlé.]
    Fundinum er fram haldið. Nýr fundur hefur verið haldinn með embættismönnum þingsins. Upp kom ágreiningur og meiri hl. féllst á tillögu minni hl. fjvn. Forseti úrskurðar því að tillaga minni hl. fjvn. skuli borin upp fyrst.
    Forseti vill kynna þá nýju útskýringu sem hann hefur fengið. Menn vilja halda því fram að brtt. minni hl. fjvn. breyti hinni upphaflegu tillögu meira og því beri að bera hana upp fyrst og forseti getur út af fyrir sig fallist á þau rök.