Gjald af erlendum lánum vegna skipasmíða
Mánudaginn 30. apríl 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Það þarf ekki að fjalla ítarlega um það hér í þessari hv. deild að vandi skipasmíðaiðnaðarins á Íslandi er mikill og hann á sér mjög langan aðdraganda. Ég hafði tækifæri til þess nú um helgina að ræða við ýmsa forsvarsmenn skipasmíðaiðnaðar á Akureyri og það kom greinilega fram í viðtölum við þá að sá vandi er mjög djúpstæður og á sér langan aðdraganda og ekki eru á honum einfaldar eða auðveldar lausnir. Ég nefni þetta nú hér í upphafi vegna þess að vikið var að því af hv. þm. Valgerði Sverrisdóttur að nauðsynlegt væri að stjórnvöld tækju til ítarlegrar meðhöndlunar margvíslegar aðgerðir til þess að reyna að styrkja skipasmíðaiðnaðinn í landinu. Ég vil í þessu sambandi nefna að ríkisstjórnin ákvað fyrir nokkrum dögum að verja ákveðnu fjármagni til þess að styrkja markaðsskipulagningu fyrir íslenskar skipasmíðastöðvar. ( HBl: Hversu miklu fjármagni?) Það var, ef ég man rétt, um 8 millj. kr., ég er nú ekki með það alveg nákvæmlega fyrir framan mig en fer með það eftir minni. Það var til þess að gera skipasmíðastöðvunum kleift á næstu vikum og mánuðum að vinna skipulagða áætlun í þeim efnum.
    Ég vil í öðru lagi nefna að ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að viðgerð á hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni fór fram í íslenskri skipasmíðastöð en ekki var tekið tilboðum frá erlendum skipasmíðastöðvum þó að þau væru ódýrari og er þar auðvitað um að ræða allverulega upphæð sem munar. Þó að hún sé að forminu til tengd fjárveitingu til Hafrannsóknastofnunar og birtist þannig í opinberum gögnum er í reynd um að ræða fyrirgreiðslu til þess að styrkja verkefni íslenskra skipasmíðastöðva.
    Ég vil í þriðja lagi nefna að ríkisvaldið hefur tvisvar á undanförnum mánuðum ákveðið að veita viðbótarframlag til þess að greiða kostnað af smíði sérstakrar Breiðafjarðarferju sem nýlega hefur verið tekin í notkun þar sem sá kostnaður reyndist mun meiri en ætlað var í upphafi.
    Ég hugsa að ef þessar þrjár ákvarðanir eru lagðar saman, þá nemi þær allnokkrum tugum milljóna króna sem með einum eða öðrum hætti tengjast beinlínis aðstoð eða styrk við íslenskan skipasmíðaiðnað.
    Ég vil í fjórða lagi nefna það að iðnrh. og fjmrh. hafa lagt drög að því að tekið verði sérstaklega á vanda Slippstöðvarinnar á Akureyri. Sá vandi er ekki aðeins vegna þess að það skip sem þar er í smíðum hefur ekki verið selt. Það var tekin ákvörðun um það að hefja smíði á þessu skipi án þess að hafa að því kaupanda. Vandinn felst ekki bara í því. Hann felst líka í því að ýmis fyrirtæki í sjávarútvegi sem hafa látið smíða fyrir sig skip í Slippstöðinni munu að öllum líkindum ekki geta staðið í skilum þannig að sá vandi nemur hugsanlega rúmlega 100 millj. kr. ef allt er talið.
    Það er þess vegna alveg ljóst að þær upphæðir sem hér er verið að ræða varðandi endurgreiðslur á erlendum lánum eru í reynd aðeins lítið brot af því

sem nauðsynlegt er að fjalla um og taka afstöðu til ef menn hafa raunverulegan vilja til þess að leysa vanda þessarar atvinnugreinar til frambúðar. Og í raun og veru held ég að það sé ekki aðalatriðið fyrir þessa atvinnugrein hvort peningarnir koma eftir þeirri leið sem fjallað er um í frv. sem hér er til umræðu heldur hvort þeir koma eftir einhverri annarri leið. Það er höfuðatriðið. Þetta er ekki spurningin um aðferðina í sjálfu sér, heldur fyrst og fremst að menn taki með heilsteyptum hætti á vanda þessarar atvinnugreinar.
    Ég vil til viðbótar nefna það enn að það mun fara fram útboð á smíði ferju milli Vestmannaeyja og lands, tengt fyrirtækinu Herjólfi, og þar er eitt af því sem stjórnvöld þurfa að meta þegar tilboð liggja fyrir hvort á að greiða fyrir því að sú smíði fari fram hér innan lands eða hvort hún fari fram erlendis eftir því hver munur á tilboðum er.
    Ég vona að þessi lýsing sýni að ríkisstjórnin hefur nú þegar á undanförnum mánuðum tekið ákvarðanir sem fela í sér allverulegt fjármagn til skipasmíðaiðnaðarins á Íslandi og í gangi er víðtæk vinna sem felur það í sér að geta fljótlega haft betri sýn á það hvað þarf í raun og veru mikið fjármagn til þess að geta styrkt þann skipasmíðaiðnað og eflt sem við viljum hafa hér í landinu.
    Ég vænti þess að þessi svör feli það í sér að menn hafi hér nokkurt yfirlit yfir það af hvaða alvöru, og hún er mikil, unnið er að þessum málum og hefur verið unnið af hálfu ríkisstjórnarinnar þar sem ekki hefur bara verið um orð að ræða heldur beinlínis útvegun fjármagns sem nemur tugum milljóna króna nú þegar til skipasmíðaiðnaðarins og verið er að ræða bæði vanda Slippstöðvarinnar á Akureyri, smíði sérstakrar ferju fyrir Herjólf og síðan 8 millj. kr. ef ég man rétt í sérstaka markaðsáætlun fyrir verkefni íslenskra skipasmíðastöðva á næstu missirum.