Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til samræmingar á ákvæðunum um sérstakan eignarskattsauka við aðrar skattaforsendur ársins 1990. Ef þeim verður ekki breytt þýðir það að menn borga þeim mun meira í sérstakan eignarskattsauka. Af þeim ástæðum varð fullt samkomulag um málið í hv. Ed.
    Ég legg til að þessu frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.