Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það var umræða um Lánasýslu ríkisins sem leiddi til umræðu um stöðu núv. fjmrh. og það mat, sem hér kom fram á hans störfum, að hann hefði fengið falleinkunn. Sú var helst skýring á því gefin að það hefði orðið halli á fjárlögum íslenska ríkisins upp á sex milljarða. Ég held að það sé óhjákvæmilegt þegar svona yfirlýsing er gefin að rifja upp í örfáum orðum hvernig til hefur tekist með fjóra fjmrh. sem hafa verið í röð og vekja þá athygli á því að á undan núv. fjmrh. var hv. 15. þm. Reykv., Jón Baldvin Hannibalsson, fjmrh. Ærinn var nú hallinn á ríkissjóði undir forustu hans og ekki veit ég nema það sé hægt að segja að veruleg batamerki séu með tilkomu þess sem nú er. Þar á undan var hv. 1. þm. Suðurl., Þorsteinn Pálsson, fjmrh. Ekki verður nú annað sagt en að þá hafi hallinn á ríkissjóði verið af þeirri stærðargráðu að það minnir nú fremur á kenningar hv. 8. þm. Reykv. um að ekki beri að reka ríkissjóð hallalaust. Það sem styður að það sé hin rétta stefna Sjálfstfl. og sú sem þeir vilji fara eftir er það að sá sem var á undan þessum var Albert Guðmundsson, fyrrv. fjmrh. Hann náði þeim árangri að skila ríkissjóði hallalausum eitt árið en var umsvifalaust settur af. Það er þess vegna ekkert skrýtið þó að eitthvert hik sé á þeim sem koma á eftir að fara í það að skila ríkissjóði hallalausum. Mér sýnist þess vegna að það sé ákaflega fróðlegt að fá það upp hver sé stefna Sjálfstfl. í þessum efnum. Er það sú stefna, sem hv. 8. þm. Reykv. hefur lagt áherslu á, að eignamyndun hjá
ríkissjóði verði óeðlilega hröð ef ríkissjóður sé rekinn hallalaust og ríkissjóður með því fyrirkomulagi eignist allt of mikið í þessu landi, nánast svo óþolandi sé? Er það að reka ríkissjóð með átta milljörðum í halla á ári, sex milljörðum eða tíu milljörðum? Hvar eru þessi mörk sem menn telja að séu eðlileg þegar niðurstaðan er sú að hv. fyrrv. fjmrh. Albert Guðmundsson var rekinn eftir að hafa verið með hallalaus fjárlög og núv. fjmrh. er skráður með falleinkunn út á sex.
Ég verð að segja eins og er að mér sýnist nokkuð torráðið hvernig eigi að meta þetta og ég held að það sé óhjákvæmilegt að það liggi skýrara fyrir hjá fulltrúum Sjálfstfl. hvernig eigi að standa að rekstri ríkissjóðs. Auðvitað væri mjög æskilegt að hv. 8. þm. Reykv. væri staddur hér í deildinni til að ræða þessi mál. Því láni eigum við nú ekki að fagna og verðum að notast við aðra minni spámenn til að eiga orðastað við um þetta. En miðað við það að Sjálfstfl. hefur um langt tímabil haft 8. þm. Reykv. sem einn aðalleiðtoga sinn í fjh.- og viðskn. þingsins þá hlýt ég að líta svo á að hann sé hinn sterki í þessum efnum og sá sem hafi verið ekki síst stefnumarkandi í því mati að þegar ráðherra skilaði hallalausum ríkissjóði þá bæri skilyrðislaust að setja hann af.
Mér finnst þess vegna að þegar núv. hv. 2. þm. Norðurl. v. er jafndómharður um þann fjmrh., sem hefur þó betrumbætt mjög stöðuna varðandi halla á ríkissjóði miðað við fyrrv. fjmrh., og þann sem var
þar á undan, þá er mér hreint ekki ljóst hvort hann telur honum þetta til lofs eða lasts í reyndinni. Ég teldi mjög æskilegt að fá allt þetta fram hér. En hinu vil ég bæta við að ég brýt um það heilann, eftir að núv. fjmrh. hefur reynt að þyngja tökin á skattheimtunni og minnka hallann, hvort hans bíði nú ef til vill sömu örlög á landsfundi Sjálfstfl. í haust, að hann verði bara settur af. ( Fjmrh.: Ekki landsfundi Sjálfstfl.) Eða landsfundi Alþb. Nú ber forseti í bjölluna. Það skal undirstrikað að ræðumaður átti við á landsfundi Alþb. En kannski er sú umhugsun ekki tímabær nú og rétt að láta tímann skera úr um hvað gerist í haust.