Þorsteinn Pálsson:
Herra forseti. Gamli Reykholtsskólakennarinn sem hvað spaklegast mælir fyrir hönd þeirra framsóknarmanna alla jafnan hér í umræðum, hv. 2. þm. Vestf., fór hér með nokkrar tölur, mínustölur og plústölur í þeim tilgangi að reyna að fá niðurstöðu í stefnu í ríkisfjármálum, án þess þó að fá niðurstöðu. Ég ætla ekki að blanda mér í þau heilabrot Reykholtsskólakennarans. Fyrir hönd stjórnarliðsins óskaði hann sérstaklega eftir því að hér yrði efnt til ítarlegrar umræðu í tilefni af þessu frv. um ríkisfjármálastefnuna, stefnuna í efnahagsmálum og önnur tengd mál og væri freistandi að verða við þessari áskorun hv. þm. einmitt nú þegar kemur að lokum þingstarfa. Ekki síst á þeim tíma þegar hæstv. ríkisstjórn leggur á það höfuðáherslu að fá sem flest af frv. sínum fram er auðvitað ástæða, ekki síst fyrir stjórnarandstöðuna, að verða við slíkum áskorunum og taka góðan tíma í almenna umfjöllun um stefnumörkun í ríkisfjármálum og efnahagsmálum.
Að þessu sinni ætla ég ekki að fara út í þá sálma heldur víkja hér að því dagskrárefni sem er til umræðu, frv. til laga um Lánasýslu ríkisins. Ég er þeirrar skoðunar að það sé margt sem mælir með því að skipa þessum málum með nýjum hætti í stjórnsýslunni eins og hér er gert ráð fyrir. Umsvif ríkisins á þessu sviði hafa farið vaxandi og verða mjög umfangsmikil á næstu árum og ekki er óeðlilegt að þess sé freistað að koma umfjöllun þeirra í fastari og öruggari skorður.
Ég sakna þess á hinn bóginn að samhliða þessari ákvörðun skuli ekki vera teknar ákvarðanir sem óhjákvæmilega tengjast þessari breyttu skipan, svo sem hvert hlutverk Seðlabankans á þá að vera í þessu efni, en hann hefur annast ákveðna þjónustu á þessu sviði fyrir ríkisstjórnina og mjög æskilegt er að nýskipan, þó nauðsynleg sé, leiði ekki til þess að áfram sé haldið störfum á öðrum vettvangi sem slík stofnun getur tekið yfir.
Ég er einnig þeirrar skoðunar að breytingu eins og þessa eigi að nota til þess að draga úr ríkisumsvifum á öðrum sviðum. Fyrir löngu er tímabært að leggja niður Framkvæmdasjóð ríkisins og ég er þeirrar skoðunar að heppilegt gæti verið ef slík ákvörðun yrði látin koma til framkvæmda að leggja skuldbindingar hans inn í þessa nýju stofnun. Um þetta hefur verið rætt á mörgum undanförnum árum. Á það hefur réttilega verið bent að fjárfestingalánasjóðakerfið er með þeim hætti að ekki er lengur þörf á Framkvæmdasjóði ríkisins. Sú breyting hefur verið gerð að sjóðirnir geta nú tekið lán beint án milligöngu Framkvæmdasjóðs og þess vegna er hans að mínu mati ekki lengur þörf og eðlilegt hefði verið að stíga slíkt aðhaldsskref á sama tíma og þessi ákvörðun er tekin. Það girðir hins vegar ekki fyrir að það skref megi taka síðar og ég sé í þessari nýju stofnun góðan farveg til að koma þessum áformum til framkvæmda. Breytingar á sjóðakerfinu eru orðnar mjög aðkallandi og væri fróðlegt að heyra álit hæstv. fjmrh. á þessum
sjónarmiðum þó ég geri mér grein fyrir að á þessum lokadögum þinghaldsins verða ekki teknar umfangsmiklar ákvarðanir af því tagi, en ég kemst ekki hjá því að láta þá skoðun mína í ljós að ég hefði talið eðlilegt að undirbúa málið með þeim hætti að hægt væri að taka slíkar ákvarðanir í heild sinni.
Í umfjöllun um þetta mál væri einnig æskilegt að fá nánari upplýsingar frá hæstv. fjmrh. um stöðu þessara mála nú. Ég ætla ekki að fara að ræða hér í einstökum atriðum afleiðingar af efnahagsstefnunni og hvernig hún hefur leitt til þess að við erum að setja hér nýtt Íslandsmet í erlendum lántökum en hefði gjarnan viljað fá frá hæstv. fjmrh. nokkuð glögga grein gerða fyrir því hvernig lánsfjáröflun ríkissjóðs á innlendum markaði hefur tekist á þessu ári, hvernig sala spariskírteina miðað við innlausn eldri skírteina stendur og sala ríkisvíxla og vaxtakjör á ríkisvíxlum um þessar mundir. Ég vildi gjarnan að hann gerði þinginu nokkra grein fyrir því hvað hann telur að muni gerast á fjármagnsmarkaðinum þegar húsbréfin komast í almenna umferð og losna úr þeim takmörkunum sem sett voru varðandi viðskipti með þau fyrstu mánuðina og hvaða áhrif það muni hafa á stöðu ríkissjóðs og hugsanlega þá á vaxtaþróun á næstu mánuðum.
Herra forseti. Ég ætlaði ekki að lengja þessa umræðu, aðeins ítreka þá skoðun sem áður hefur komið fram af hálfu fulltrúa Sjálfstfl. að við teljum eðlilegt að festa betur í sessi skipan þessara mála í stjórnsýslunni. Það hefði verið æskilegt að draga úr umsvifum í opinbera kerfinu samhliða, eins og Framkvæmdasjóði ríkisins. Ég hef borið hér fram ákveðnar spurningar til hæstv. fjmrh. en vil líka minna á af því tilefni að skipulagsbreytingar af þessu tagi munu auðvitað ekki ráða því hverjar eru afleiðingar af efnahags- og fjármálastefnu ríkisstjórna á hverjum tíma og þær einar út af fyrir sig koma þess vegna ekki því skikki á ríkisfjármálin og lánamarkaðinn sem menn stefna að. Þar þarf auðvitað pólitískar ákvarðanir og markvissa efnahagsstefnu en eigi að síður er það mitt álit að hér sé um að ræða spor í framfaraátt.