Innflutningur dýra
Mánudaginn 30. apríl 1990


     Frsm. landbn. (Alexander Stefánsson):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til laga um innflutning dýra frá landbn. sem skilar samhljóða áliti.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund Jónas Jónsson búnaðarmálastjóra. Einnig bárust nefndinni athugasemdir frá Brynjólfi Sandholt yfirdýralækni og Árna M. Mathiesen, dýralækni fisksjúkdóma, varðandi frv. og hefur verið tekið tillit til flestra þeirra athugasemda sem þar komu fram.
    Nefndin hafði einnig til meðferðar umsögn frá búnaðarþingi þar sem búnaðarþing leggur til að frv. verði lögfest eins og það liggur fyrir, óbreytt. Og í áliti yfirdýralæknis, Brynjólfs Sandholts, stendur m.a.: ,,Efnislega hef ég ekkert við frv. að athuga og álít að þær breytingar sem felist í þessu frv. miðað við núgildandi reglur um innflutning dýra geti komið íslenskum landbúnaði og neytendum til góða ef vel tekst til. Stöðugt verður að hafa í huga að með innflutningi dýra fylgir ákveðin áhætta sem viðkomandi aðilar verða að leggja mat á hverju sinni hafandi í huga að íslenskur búpeningur virist viðkvæmari fyrir sjúkdómum en erlendir stofnar sem hafa lifað í stöðugu áreiti þeirra.``
    Nefndin er sammála um að leggja til nokkrar breytingar á frv. Sumar lúta að orðalagi og áherslum en aðrar eru efnislegar. Efnislegar breytingar varða í fyrsta lagi einangrunarstöð, sbr. 13. gr. frv. Lagt er til að innflutningur í einangrunarstöð verði undir eftirliti umsjónardýralæknis. Er þetta gert til að leggja áherslu á að ströngustu reglum sé líka fylgt við innflutning í einangrunarstöð sem og sóttvarnastöð. Gæti
slíkur innflutningur valdið stórskaða ef ekki er að gáð og því eðlilegt að ströngustu reglur gildi um hann.
    Í öðru lagi er lagt til að 1. gr. frv. verði breytt þannig að yfirmaður sóttvarna- eða einangrunarstöðvar nefnist sóttvarnadýralæknir, en ekki umsjónarmaður, og breytast nokkrar greinar til samræmis við það.
    Í þriðja lagi er lögð til breyting á 3. gr. þar sem nefndin telur óþarft ef yfirdýralæknir mælir ekki með innflutningi dýrs að honum sé gert að skila rökstuddu áliti um heilbrigðisástand í því landi sem flytja á dýrið frá.
    Þá er lagt til að ákvæði 1. málsl. síðari málsgreinar 4. gr. um mat búfjárræktarnefndar á innflutningi falli brott þar sem í fyrri málsgrein sömu greinar er ráðherra skyldaður til að leita álits nefndarinnar áður en innflutningur er leyfður. Ákvæðið er því óþarft.
    Í fimmta lagi leggur nefndin til að embættisdýralæknir framkvæmi heilbrigðisskoðun á dýrum sem flytja á inn og dýrum sem gefa erfðaefni sem flutt er inn, en ekki sé látið nægja að viðurkenndur dýralæknir framkvæmi slíka skoðun. Jafnframt er lagt til að upplýsingar um slíkan innflutning liggi fyrir áður en hann fer fram.
    Að lokum er lagt til að það sé búfjárræktarnefnd í viðkomandi grein en ekki landsráðunautur sem viðurkenni bú sem fái að flytja dýr úr einangrunarstöð á búið.

    Kristín Einarsdóttir sat á fundi nefndarinnar þar sem þetta mál var tekið fyrir og er samþykk málinu.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þessum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj., 1126, en þar eru 11 brtt. sem ég tel ekki þörf á að fara yfir, herra forseti, heldur skýra þær sig sjálfar miðað við það sem ég hef áður getið í nál.
    Að svo mæltu leggur nefndin til, samhljóða, að frv. verði samþykkt til 3. umr.