Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég gætti þess ekki að hafa fyrirvara fyrir samþykki mínu við frv. Ég sé engin efnisleg rök fyrir því að það sé áskilið að kona sem ekki nái tilteknum árangri njóti styrks úr sjóðnum og finnst kynskipting af þessu tagi út í hött. Ég get ekki skilið að ef t.d. fjórar konur hefðu náð stórmeistaraárangri þá skuli lögin vera þannig úr garði gerð að enginn karlmaður komi til greina. Þetta er nú í fyrsta lagi hálfbroslegt og auðvitað mjög hæpið að það sé forsvaranlegt að Alþingi gangi frá löggjöf með þessum hætti. Í öðru lagi get ég ekki skilið að nokkur kona muni geta hugsað sér að þiggja laun úr sjóðnum á öðrum forsendum en jafningjar hennar sem eru karlkyns. Þess eru dæmi að konur séu stórmeistarar. Það er á hinn bóginn vitað að minna er um það að konur leggi skák fyrir sig en karlmenn og af þeim ástæðum eðlilegt að færri konur séu í hópi stórmeistara en karlar.
Ég skil ekki efnislegu rökin fyrir því að taka upp kynskiptingu af þessu tagi, finnst þessi framkoma í garð kvenna móðgandi og get ekki fellt mig við lögin eins og þau eru. Setning af þessu tagi á ekkert skylt við jafnrétti, á ekkert skylt við kvenréttindi almennt talað. Það er einungis verið að gera lítið úr konum með því að setja inn ákvæði af þessu tagi. Hef ég ekki meira um þetta mál að segja.