Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Frsm. 1. minni hl. sjútvn. (Stefán Guðmundsson):
    Hæstv. forseti. Ég tala hér fyrir nál. 1. minni hl. sjútvn. um frv. til laga um stjórnun fiskveiða á þskj. 1109. Þann minni hl. myndar auk mín hv. þm. Jóhann Einvarðsson.
    Því miður fór svo í sjútvn. að þar náðist ekki samstaða um endanlegar tillögur til breytingar á frv. Strax í upphafi nefndarstarfsins var nokkuð ljóst hver afgreiðsla málsins mundi verða úr nefnd. Þegar í upphafi höfðu nefndarmenn mjög ákveðnar skoðanir og héldu þeim allt til loka. Því eru lögð hér fram fimm nál.
    Herra forseti. Í nál. 1. minni hl. segir svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað ítarlega um frv. á tuttugu fundum. Sjö þeirra voru haldnir sameiginlega með sjútvn. Nd. Á fundi nefndarinnar komu eftirtaldir: Þorsteinn Gíslason fiskimálastjóri, Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Lárus Jónsson frá Félagi rækju- og hörpudiskframleiðenda, Sigurbjörn Svavarsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson frá Aflamiðlun, Örn Pálsson, Arthur Bogason og Haraldur Jóhannsson frá Landssambandi smábátaeigenda, Jón Kjartansson og Snær Karlsson frá Verkamannasambandi Íslands, Árni Benediktsson frá Félagi Sambandsfiskframleiðenda, Óskar Vigfússon og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands, Benedikt Valsson, Kristján Ingibergsson, Guðjón A.
Kristjánsson, Helgi Laxdal og Ragnar I. D. Hermannsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Dagbjartur Einarsson frá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda, Kristján Ragnarsson, Brynjólfur Bjarnason, Eiríkur Tómasson, Sigurður Einarsson og Sveinn Hjörtur Hjartarson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Jón Ingvarsson og Ólafur B. Ólafsson frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Ágúst Einarsson, Sturlaugur Sturlaugsson, Arnar Sigurmundsson og Ágúst Elíasson frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Jón Kristjánsson fiskifræðingur, Ólafur Karvel Pálsson frá Hafrannsóknastofnun og Sigurgeir Sigurðsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Komu nokkrir gestanna oftar en einu sinni til fundar við nefndina.
    Umsagnir um frv. og ýmis erindi er vörðuðu það bárust frá eftirtöldum: Bæjarstjórn Stykkishólms, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Félagi Sambandsfiskframleiðenda, Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja, Félagi rækju- og hörpudiskframleiðenda, Félagi viðskipta- og hagfræðinga, Fiskifélagi Íslands, Fjórðungssambandi Norðlendinga, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Landssambandi smábátaeigenda, rækjubátaeigendum við Ísafjarðardjúp, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, Samtökum fiskvinnslustöðva, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Sjómannasambandi Íslands, Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda, Verkalýðsfélaginu Baldri,

verkalýðsfélögunum á Snæfellsnesi, Verslunarráði Íslands, Vinnuveitendafélagi Breiðafjarðar, Vinnuveitendafélagi Vestfjarða og Vinnuveitendafélagi Vestmannaeyja.``
    Ég sé að inn í þetta vantar trúlega að frá Hafrannsóknastofnun mætti einnig ásamt og með Ólafi Karveli Pálssyni Jakob Jakobsson.
    ,,Kristján Skarphéðinsson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sat flesta fundi nefndarinnar. Veitti hann nefndinni ýmsar upplýsingar varðandi frv. og aflaði þeirra gagna er nefndin óskaði eftir.``
    Ég sé alveg sérstaka ástæðu hér til þess að þakka Kristjáni Skarphéðinssyni mjög gott starf fyrir nefndina. Hann létti okkur vissulega róðurinn.
    ,,Einnig var aflað gagna um ýmis atriði samkvæmt óskum sem fram komu, m.a. frá Fiskifélagi Íslands. Enn fremur voru lagðar fram tillögur þær sem þrír stjórmálaflokkar í Færeyjum hafa gert um hugsanlega fiskveiðistjórn þar í landi. Þá óskuðu níu alþingismenn eftir áliti Lagastofnunar Háskóla Íslands á réttarfars-, skattaréttar- og eignarréttarlegum álitaefnum í frv. Hafa prófessor Sigurður Líndal og Tryggvi Gunnarsson hæstaréttarlögmaður unnið að henni, en ekki tókst að ljúka álitsgerðinni fyrir afgreiðslu málsins úr nefndinni. Stefnt er að því að álitið liggi fyrir við 2. umr. málsins í Ed.
    Fullvíst má telja að fá mál sem komið hafa hér til afgreiðslu á Alþingi hafi verið jafnrækilega undirbúin og það frv. sem hér er til umræðu. Er það eðlilegt þar sem hér er um eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar að ræða þar sem það fjallar um skipulag á nýtingu mikilvægustu auðlindar landsmanna. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi og allra helstu hagsmunaaðila í sjávarútvegi hafa samkvæmt ákvörðun Alþingis unnið með sjávarútvegsráðuneytinu að undirbúningi frv. allt frá haustinu 1988, í ráðgjafarnefnd um mótun fiskveiðistefnu.
    Í frv. er byggt á þeim grunni sem Alþingi markaði með lagasetningu um stjórn fiskveiða árið 1984. Með þeirri lagasetningu var stigið mikilvægt skref af þeirri braut skipulagslausrar fjárfestingar og sóunar á verðmætum sem átti sér stað í sjávarútvegi á áttunda áratugnum. Var mörkuð sú stefna að skipta veiðiheimildum upp á milli skipa 10 brl. og stærri. Fyrsti minni hl.
nefndarinnar telur að sú stefna hafi verið rétt og að með því fyrirkomulagi að skipta veiðiheimildum milli skipa verði sem minnst röskun á högum þeirra sem daglega starfa að fiskveiðum.
    Reynslan af því fyrirkomulagi, sem ríkt hefur við fiskveiðistjórn á undanförnum árum, hefur sýnt að engar verulegar tilfærslur hafa átt sér stað á botnfiskveiðiheimildum milli kjördæma. Þó virðist sem hlutur landsbyggðarinnar hafi frekar styrkst og vísast í því sambandi til fskj. I sem unnið er af Fiskifélagi Íslands og sýnir annars vegar afla skipa miðað við skráningu eftir kjördæmum og hins vegar landaðan afla eftir kjördæmum. Á fskj. II eru hins vegar sambærilegar upplýsingar um úthlutað botnfiskaflamark til skipa 10 brl. og stærri eftir kjördæmum. Þá hafa

ekki heldur orðið neinar verulegar tilfærslur milli veiðiheimilda báta og togara frá því að þessi fiskveiðistjórn var tekin upp, sbr. fskj. III.
    Með því að úthluta veiðiheimildum á skip voru bundnar miklar vonir við að fiskiskipum fækkaði og afkoma sjávarútvegsins batnaði af þeim sökum. Í þeim lögum, sem Alþingi samþykkti í upphafi árs 1988, var í fyrsta sinn veitt heimild til að sameina aflaheimildir skipa. Á grundvelli þeirra heimilda hefur fiskiskipum verið að fækka að undanförnu og vísast um það til svars sjútvrh. á þskj. 698 við fyrirspurn Skúla Alexanderssonar. Hins vegar hefur bátum undir 10 brl. fjölgað verulega frá árinu 1984 enda hafa litlar takmarkanir verið á fjölgun þeirra. Það hefur verið gagnrýnt að heildaraflinn hafi farið fram úr þeim mörkum sem stjórnvöld hafa sett. Þessi frávik skýrast að fullu með þeim sveigjanleika sem veiðar smábáta og sóknarmarkið hafa valdið, sbr. fskj. IV þar sem fram koma upplýsingar um mismun í úthlutuðu aflamarki og raunverulegum afla fyrir þau skip sem stunduðu veiðar annars vegar með aflamarki og hins vegar með sóknarmarki árið 1989. Í frv. er hins vegar gert ráð fyrir að byggja eingöngu á aflamarki og virðist nokkuð breið samstaða um það. Er það sama fyrirkomulag og ríkt hefur um veiðar á síld allt frá árinu 1976 og um veiðar á loðnu frá árinu 1980. Þá er gert ráð fyrir að veiðar smábáta verði skipulagðar að mestu með sama hætti og veiðar stærri skipa. 1. minni hl. nefndarinnar telur að með þeim breytingum, sem lagðar eru til í frv., skapist annars vegar færi á að halda settum markmiðum um heildarafla og hins vegar muni þessar breytingar leiða til þess að eðlileg fækkun fiskiskipa geti átt sér stað. Þar með skapast forsendur til að stuðla að frekari lækkun á útgerðarkostnaði og betri afkomu fyrir sjávarútveginn í heild.
    1. minni hl. nefndarinnar telur afar brýnt að löggjöf um fiskveiðistjórn verði samþykkt á þessu þingi og er það í samræmi við álit flestra þeirra hagsmunaaðila í sjávarútvegi sem komu á fund nefndarinnar.
    Leggur 1. minni hl. til að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingum:
    1. Lagt er til að bætt verði inn í 1. gr. til áhersluaukningar ákvæði þar sem ótvírætt er tekið fram að úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögunum stofni ekki eignarrétt né skerði forræði löggjafans til að ákveða síðar, án bótaskyldu til einstakra útgerða, breytingu á fyrirkomulagi við stjórn fiskveiða. Það hlýtur ávallt að vera ákvörðunarefni Alþingis á hverjum tíma hvað skipulag teljist best henta til að nýting fiskveiðiauðlindarinnar þjóni sem best hagsmunum heildarinnar.
    2. Með tillögu um breytingu á 4. gr. er lagt til að úr frv. falli ákvæði um að sérstakt leyfi þurfi til að stunda tómstundaveiðar. Skilyrðum frv. til að fá leyfi til fiskveiða í atvinnuskyni verður hins vegar haldið óbreyttum sem og skilgreiningu á veiðum í atvinnuskyni.
    3. Þær breytingar, sem gerðar eru á 5. gr., eru tæknilegar og varða annars vegar skráningu á bátum

undir 10 brl. og hins vegar breytingu á nafni Úreldingarsjóðs fiskiskipa í Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.
    4. Breytingin á 6. gr. leiðir af breytingu á 4. gr. frv. um að ekki þurfi sérstakt leyfi til að stunda veiðar í tómstundum.
    5. Lagt er til að 11. gr. verði breytt þannig að sveitarstjórnum verði veittur forkaupsréttur við sölu fiskiskips úr byggðarlagi. Þetta komi í stað ákvæða um tilkynningarskyldu í 11. gr. frv. Með þessu ákvæði er betur tryggt að heimaaðilum gefist svigrúm til að ganga inn í kaup og er þetta í samræmi við tillögur síðasta fiskiþings. Jafnframt er lagt til að framsal aflaheimilda verði takmarkað nokkuð frá því sem er í frv. Miða breytingartillögurnar að því að það skip, sem aflahlutdeild er framseld til, þurfi að hafa aflahlutdeild fyrir í viðkomandi tegund. Ráðherra geti þó vikið frá þessu ákvæði að fenginni umsögn samráðsnefndar.
    6. Tillaga er um breytingu á 12. gr. sem fjallar um framsal á árlegu aflamarki og er hún í samræmi við brtt. skv. 5. tölulið.
    7. Gerð er tillaga um að ákvæði til bráðabirgða II verði breytt þannig að smábátar, er bætast í flotann á árinu 1990 án þess að sambærilegir bátar séu úreltir, fái aflahlutdeild er svari til meðalaflahlutdeildar báta í sama stærðarflokki. Um aflahlutdeild þessara báta gildi sömu reglur og um aflahlutdeild annarra skipa að öðru leyti en því að framsal hennar er óheimilt í fimm ár frá gildistöku laganna með sama hætti og varðar framsal
aflahlutdeildar stærri skipa sem rekja má til uppbóta sbr. 4. mgr. 11. gr. frv. Aflahlutdeild þessara báta teljist ekki með við ákvörðun aflahlutdeildar annarra smábáta skv. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II.
    8. Gerðar eru tillögur um tæknilegar leiðréttingar á ákvæðum til bráðabirgða IV og V til að bæta úr ágöllum sem í ljós hafa komið í textanum.
    9. Loks er lagt til að við frv. verði bætt tveimur nýjum ákvæðum til bráðabirgða. Fyrra ákvæðið kveður á um að sjútvrh. verði falið að láta fara fram úttekt á mismunandi kostum við stjórn fiskveiða og hagkvæmni þeirra. Þá verði ráðherra falið að endurskoða lögin í samráði við sjútvn. Alþingis og helstu hagsmunaaðila í sjávarútvegi og skal þeirri endurskoðun lokið fyrir árslok 1992. Með síðara ákvæðinu er gerð tillaga um að lög nr. 32/1976, um upptöku ólöglegs sjávarafla, verði endurskoðuð og frv. að nýjum lögum lagt fram í haust.
    1. minni hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með þessum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.``
    Undir þetta rita Stefán Guðmundsson og Jóhann Einvarðsson.
    Þær brtt. sem 1. minni hl. leggur til eru á þskj. 1110 og eru þannig:
    ,,1. Við 1. gr. Við greinina bætist nýr málsl. er orðist svo: Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.

    2. Við 4. gr. 1. mgr. orðist svo:
    Enginn má stunda veiðar í atvinnuskyni við Ísland nema hafa fengið til þess almennt veiðileyfi. Veiðileyfi skulu gefin út til árs í senn.
    3. Við 5. gr.
    a. Í stað 2. málsl. komi tveir nýir málsl. svohljóðandi: Enn fremur bátar undir 6 brl. enda hafi beiðni um skráningu þeirra á skipaskrá Siglingamálastofnunar ríkisins eða sérstaka skrá stofnunarinnar fyrir báta undir 6 metrum borist ásamt fullnægjandi gögnum innan mánaðar frá gildistöku laga þessara. Auk þess skal gefinn kostur á veiðileyfi fyrir nýja báta undir 6 brl. enda hafi smíði þeirra hafist fyrir gildistöku laganna og haffærisskírteini verið gefið út innan þriggja mánaða frá þeim tíma.
    b. Í stað orðanna ,,Úreldingarsjóðs fiskiskipa`` í 2. mgr. komi orðin: Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins.
    4. Við 6. gr. Greinin orðist svo:
    Heimilt er án sérstaks leyfis að stunda fiskveiðar í tómstundum til eigin neyslu. Slíkar veiðar er einungis heimilt að stunda með handfærum án sjálfvirknibúnaðar. Afla, sem veiddur er samkvæmt heimild í þessari grein, er óheimilt að selja eða fénýta á annan hátt.
    5. Við 11. gr.
    a. Í stað 3. mgr. komi þrjár nýjar málsgreinar er orðist svo:
    Eigi að selja fiskiskip, sem leyfi hefur til veiða í atvinnuskyni, til útgerðar sem heimilisfesti hefur í öðru sveitarfélagi en seljandi á sveitarstjórn í sveitarfélagi seljanda forkaupsrétt að skipinu. Forkaupsréttur skal boðinn skriflega þeirri sveitarstjórn sem hlut á að máli og söluverð og aðrir skilmálar tilgreindir á tæmandi hátt. Sveitarstjórn skal svara forkaupsréttartilboði skriflega innan fjögurra vikna frá því henni berst tilboð og fellur forkaupsréttur niður í það sinn sé tilboði ekki svarað innan þess frests.
    Neyti sveitarstjórn forkaupsréttar skv. 3. mgr. þessarar greinar skal hún þegar gefa útgerðaraðilum, sem heimilisfesti eiga í sveitarfélaginu, kost á að kaupa skipið og skal opinberlega leita tilboða í það.
    Sé skipi ráðstafað andstætt ákvæðum þessarar greinar um forkaupsrétt getur forkaupsréttarhafi krafist þess að salan verði ógild enda sé málsókn hafin innan sex mánaða frá því að hann fékk vitneskju um söluna. Forkaupsréttur gildir ekki sé skip selt á opinberu uppboði. Ákvæði þessarar greinar um forkaupsrétt gilda ekki við sölu opinna báta.
    b. 2. málsl. 4. mgr. (er verði 6. mgr.) orðist svo: Þó skal framsalið háð samþykki ráðherra hafi það skip, sem flutt er til, ekki aflahlutdeild af þeirri tegund sem framseld er.
    6. Við 12. gr. 1. málsl. 1. mgr. orðist svo: Heimilt er að færa aflamark milli skipa sömu útgerðar eða skipa sem gerð eru út frá sömu verstöð eftir því sem hlutaðeigandi aðilar koma sér saman um enda hafi það skip, sem fært er til, aflahlutdeild af þeirri tegund sem millifærð er.
    7. Við ákvæði til bráðabirgða II.
    a. Aftan við 4. mgr. ákvæðisins bætist ný mgr. er

verði 5. mgr. og orðist svo:
    Aflahlutdeild báta, sem veiðileyfi fá í fyrsta sinn eftir 31. des. 1989, án þess að sambærilegir bátar hafi horfið varanlega úr rekstri í þeirra stað, skal þó miðast við meðalaflahlutdeild báta í sama stærðarflokki. Aflahlutdeild þessara báta hefur ekki áhrif á útreikning aflahlutdeildar annarra báta skv. 2. mgr. Ekki er heimilt að framselja aflahlutdeild þessara báta fyrr en að
liðnum fimm árum frá gildistöku laga þessara enda hafi þeim verið haldið til veiða allt tímabilið.
    b. 1. málsl. 7. mgr. (er verður 8. mgr.) orðist svo: Ráðherra skal með reglugerð setja nánari reglur um úthlutun þessa, þar á meðal um stærðarflokkun báta.
    c. Í stað orðanna ,,5. mgr.`` í lokamálsgrein ákvæðisins komi: 7. mgr.
    8. Við ákvæði til bráðabirgða IV. Í stað orðanna ,,fyrir gildistöku laga þessara`` í lok 1. og 2. mgr. ákvæðisins komi orðin: áður en lög þessi koma til framkvæmda.
    9. Við ákvæði til bráðabirgða V. Í stað orðanna ,,við gildistöku laga þessara`` komi orðin: er lög þessi koma til framkvæmda.
10. Við bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða er orðist svo:
    a. (VII.) Sjútvrh. skal láta fara fram athugun á mismunandi kostum við stjórn fiskveiða þar sem m.a. skal leitast við að meta hagkvæmustu samsetningu fiskiskipaflotans. Skal athugunin, er m.a. taki mið af reynslu annarra þjóða, beinast að því að meta hagkvæmni einstakra aðferða miðað við íslenskar aðstæður með sérstakri hliðsjón af því hvernig unnt sé að tryggja atvinnuöryggi fiskverkafólks og hagsmuni einstakra byggðarlaga. Þá skal ráðherra fyrir árslok 1992 láta endurskoða lög þessi. Hafa skal samráð við sjávarútvegsnefndir Alþingis og samtök helstu hagsmunaaðila í sjávarútvegi við þá endurskoðun.
    b. (VIII.) Sjútvrh. skal láta fara fram endurskoðun á lögum um upptöku ólöglegs sjávarafla, nr. 32 19. maí 1976, og leggja frv. að nýrri löggjöf um það efni fyrir Alþingi haustið 1990. Skal sú endurskoðun m.a. beinast að því að aðskilja eftirlit og úrskurðarvald.``
    Ég hef þá, virðulegi forseti, lokið við að fara yfir þær brtt. sem 1. minni hl. gerir við frv. Eins og hér var vikið að í máli mínu áðan var leitað álits Lagastofnunar Háskólans, eða eins og segir hér, að með bréfi dagsettu 4. apríl sl. fóru níu þingmenn þess á leit að nokkur álitaefni er tengdust frv. því er hér er til umræðu yrðu borin undir Lagastofnun Háskóla Íslands. Framsendi ég, sem formaður sjútvn. deildarinnar, bréf níumenninganna degi síðar til Lagastofnunar. Síðdegis í gær barst mér í hendur álitsgerð þeirra Sigurðar Líndals prófessors og Tryggva Gunnarssonar hæstaréttarlögmanns, en Lagastofnun hafði falið þeim verkefnið. Álitsgerðin, sem bæði er vönduð og ítarleg, var þegar send nefndarmönnum í sjútvn. Þar sem hér er um viðamikið álit að ræða tel ég ekki fært að fara yfir það í heild sinni. Höfundar draga niðurstöðurnar saman í stuttu máli í lok álitsgerðar og mun ég gera

grein fyrir þeim.
    Í bréfi níumenninganna er í fyrsta lagi spurt:
    ,,Er eðlilegt með tilliti til þeirra sjónarmiða sem almennt gilda gagnvart réttaröryggi einstaklinga og/eða fyrirtækja í þróuðum réttarríkjum að ráðherra sé svo sem síðar greinir í frv. einnig veitt vald til þess að hafa sjálfur með höndum allt eftirlit með framkvæmd laganna, sbr. 17. gr. frv.?``
    Samandregin niðurstaða varðandi þessa spurningu er svohljóðandi í niðurlagi álitsgerðarinnar:
    ,,Hlutverk ráðuneyta er að hafa almennt eftirlit með framkvæmd laga en óvenjulegt er að ráðuneyti hafi sérstaka eftirlitsmenn í þjónustu sinni með sama hætti og veiðieftirlitsmenn þá sem hér um ræðir. En niðurstöður þeirra kunna að verða tilefni til ákvarðana ráðuneytisins um upptöku afla. Ekki verður bent á nein ákvæði í stjórnarskrá eða aðrar reglur sem takmarka heimild löggjafans til að hafa þessa skipan, sbr. III. kafla.``
    Önnur spurning níumenninganna hljóðar svo:
    ,,Er eðlilegt að ráðherra fái nánast skattlagningarheimild, sbr. 18. gr. frv., til að kosta það eftirlit sem hann ákveður samkvæmt 17. gr. frv.?``
    Niðurstaða álitsgerðarinnar varðandi þetta atriði er svohljóðandi:
    ,,Veiðieftirlitsgjald er skattur. Ákvæði 3. mgr. 18. gr. frv. um fast gjald fyrir veiðileyfi fullnægir ekki að öllu leyti ákvæðum 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar um heimild til skattlagningar, sbr. IV. kafla.``
    Næstu spurningar níumenninganna lúta að ákvæðum laga um upptöku ólöglegs sjávarafla frá 1976 og er svohljóðandi:
    ,,Er eðlilegt að í 20. gr. frv. sé ráðherra heimilað að beita lögum nr. 32 19. maí 1976 vegna brota á lögum þessum þannig að ráðherra fær með því ákvæði frv. auk rannsóknarvaldsins, sem felst í eftirlitsheimildinni, heimild til þess að leggja á meinta brotaaðila refsitengd viðurlög?
    Er ekki eðlilegt að það hljóti að koma til skoðunar þau nýju sjónarmið réttarverndar sem felast í nýlega gengnum dómi Hæstaréttar þar sem reynt hefur á gildi 1. mgr. 6. gr. Evrópusamningsins um verndun mannréttinda, sbr. auglýsingu nr. 11 1954?``
    Samandregnar niðurstöður álitsgerðarinnar varðandi þennan þátt hljóða svo:
    ,,Ákvarðanir sjútvrn. um upptöku sjávarafla sem veiddur er umfram heimildir eru stjórnsýsluúrskurðir og kostur er á að bera slíkan úrskurð undir dómstóla. Upptaka sjávarafla er hér ekki refsing. Eru ýmis dæmi um að stjórnvöldum sé
fengið áþekkt vald. Þessi skipan mála fer ekki í bága við ákvæði stjórnarskrár um skiptingu verkefna milli framkvæmdarvalds og dómsvalds.
    Ákvæði 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fjalla fyrst og fremst um meðferð mála hjá dómstólum. Ákvörðunarvald ráðherra um upptöku ólöglegs sjávarafla verður ekki talið fara í bága við ákvæðið, sbr. V. kafla.``
    Í lok bréfs níumenninganna er svofelld ósk sett fram: ,,Þá óskast umsögn Lagastofnunar á því atriði

frv., sbr. 1. gr. þess um sameign íslensku þjóðarinnar á nytjastofnum á Íslandsmiðum, hvort tímabundinn og takmarkaður afnotaréttur fiskstofna myndi aldrei einstaklingsbundna og stjórnarskrárvarða eign og hvort það að væntanleg lög verði ótímabundin myndi ekki frekar neinn framtíðar eignarrétt.``
    Niðurstaða álitsgerðarinnar varðandi þetta álitaefni er svohljóðandi:
    ,,Hafsvæðin umhverfis landið utan netalagna hafa frá fornu fari verið almenningur sem enginn getur helgað sér sem eign, sbr. VI. kafla atvinnuréttinda, teljast eign og njóta verndar 67. gr. stjórnarskrárinnar. Sú vernd er þó takmarkaðri en vernd hefðbundinna eignarrétta. Atvinnuréttindi þau sem menn hafa helgað sér á sviði fiskveiða eru eignarréttindi. Ákvæði frv. stofna ekki til einstaklingsbundins stjórnarskrárvarins eignarréttar yfir veiðiheimildum. Á hinn bóginn afmarka þau og skilgreina nánar þau eignarréttindi í formi atvinnuréttinda sem við teljum að kunni að vera fyrir hendi. Mörg álitaefni rísa um það hvernig á vernd þessara eignarréttinda kann að reyna. Löggjafanum er heimilt að setja þeim almenn takmörk, enda sé jafnræðis gætt. Atvinnuréttindi þessi fela ekki í sér neinn einkarétt ef takmarkanir á fiskveiðum yrðu felldar niður að einhverju eða öllu leyti.``
    Niðurstöður þessarar vönduðu álitsgerðar koma mér um fátt á óvart. Enda þótt höfundar álitsgerðarinnar telji núverandi fyrirkomulag varðandi eftirlit með framkvæmd laga um stjórnun fiskveiða og varðandi upptöku ólögmæts sjávarafla standast að öllu leyti benda þeir á að ýmis sjónarmið mæli með því að þessi mál verði tekin til endurskoðunar. Er það í fullu samræmi við skoðanir 1. minni hl. sjútvn. sem hefur í brtt. sínum lagt til að lög um upptöku ólöglegs sjávarafla verði endurskoðuð í sumar og m.a. að því stefnt að aðskilja eftirlit og úrskurðarvald. Er lagt til að frv. um það efni verði lagt fyrir Alþingi nú í haust. Þau sjónarmið sem fram koma í álitsgerðinni hljóta ótvírætt að verða til leiðbeiningar við það endurskoðunarstarf.
    Varðandi gjaldtöku 18. gr. er niðurstaða álitsgerðarinnar sú að hið eiginlega veiðieftirlitsgjald í 2. mgr. standist. Hins vegar kemur á óvart sú niðurstaða að hæpið sé að ákvörðun ráðherra um fast gjald vegna útgáfu veiðileyfa skv. 3. mgr. 18. gr. fái staðist. Sambærileg gjaldtaka á grundvelli hliðstæðra heimilda tíðkast á öllum sviðum stjórnsýslu fyrir útgáfu hvers konar leyfa, skírteina og vottorða. Varðandi þetta atriði liggur beint við að allur vafi sé af tekinn og inn í 3. mgr. 18. gr. verði bætt ákvæði um fjárhæð þess leyfisgjalds og mun ég beita mér fyrir því að það verði gert við 3. umr. málsins.
    Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þann þátt álitsgerðarinnar er varðar eignarréttarvernd, atvinnuréttindi á sviði fiskveiða. Mikil en ómarkviss umræða hefur átt sér stað um þetta atriði um nokkurt árabil. Tel ég álitsgerðina mikilvægt innlegg í þá umræðu, enda er álitsgerðin sett fram á mjög skýran og skipulegan hátt og réttarstaðan skýrð. Ég vil nota

tækifærið til þess að þakka þeim ágætu mönnum fyrir þá vinnu sem þeir hafa lagt hér fram og var vissulega unnin á mjög knöppum tíma. En ég held að við getum verið um það sammála að hún skýri nokkuð þau mál sem hér er um fjallað.
    Herra forseti. Við samþykkt gildandi laga um stjórnun fiskveiða ákvað Alþingi að þegar skyldi hafinn undirbúningur að löggjöf er tæki við í ársbyrjun árið 1991. Var á grundvelli þeirrar ákvörðunar lögbundið að sjútvrh. skipaði nefnd samkvæmt tilnefningu þingflokka og helstu hagsmunaaðila í sjávarútvegi til að koma með tillögur um fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar. Á vegum nefndarinnar var það frv. sem hér liggur fyrir unnið. Fullvíst má telja að fá mál, sem komið hafa til afgreiðslu þingsins, hafi verið jafnrækilega undirbúin og þetta mál. Um það er ekki lengur deilt að fiskiskipastóllinn er stærri en sem nemur afrakstursgetu fiskstofnanna. Af þeim sökum er nauðsynlegt að takmarka sókn einstakra skipa og stefna að því að þeim fækki nokkuð frá því sem nú er. Með því móti einu er hægt að auka veiðiheimildir þeirra skipa sem eftir verða í flotanum og stuðla þannig að lækkun á útgerðarkostnaði og bættum lífskjörum hér á landi.
    Í frv. sem hér er til umfjöllunar er gert ráð fyrir að framseljanlegum veiðiheimildum verði úthlutað til einstakra fiskiskipa, eins og verið hefur allt frá árinu 1984. Þetta fyrirkomulag hefur verið gagnrýnt af ýmsum og hefur sú gagnrýni í sumum tilvikum verið réttmæt, en oftar hefur hún verið óréttmæt.
    Gagnrýni hefur m.a. beinst að því að stjórn veiðanna hafi ekki leitt til fækkunar fiskiskipa, gæði afla hafi ekki aukist og ekki hafi tekist að byggja upp fiskstofnana. Staðreyndin er sú að okkur hefur tekist mun betur en ýmsum nágrannaþjóðum okkar sem byggja mikið á sjávarútvegi að viðhalda
fiskauðlindunum. Nægir í því sambandi að nefna Norðmenn, Færeyinga, Grænlendinga og Kanadamenn.
    Þorskafli Kanadamanna hefur nú farið úr 700--800 þús. tonnum í 200--300 þús. tonn. Á Grænlandi fiskuðu menn rétt upp úr 1960 um 450 þús. tonn. Nú eru veidd við Grænland rétt um 15 þús. tonn. Í Barentshafi hefur afli fallið úr hvorki meira né minna en milljón tonnum í um 300--400 þús. tonn og sama er það sem frændur okkar Norðmenn eru að berjast við.
    Hvar halda menn að við Íslendingar stæðum ef okkur hefði ekki borið gæfa til að skynja hvað var að gerast hér í hafinu í kringum okkur? Þessum þjóðum hefur ekki tekist að taka upp það fyrirkomulag við stjórnun fiskveiða sem í senn leiðir til meiri hagkvæmni í sjávarútvegi og stuðlar að skynsamlegri nýtingu fiskstofnanna. Ástæðurnar fyrir því eru m.a. þær að í öllum þessum löndum er rekin umsvifamikil styrkjastefna í sjávarútvegi sem getur aldrei leitt til annars en sóunar á verðmætum. Vissulega hefur verðmætum verið sóað með offjárfestingu í sjávarútvegi hér á landi. Sú offjárfesting átti sér fyrst og fremst stað á þeim tíma þegar litið var nánast á

fiskstofnana sem óþrjótandi auðlind. Mikil uppbygging átti sér stað bæði í veiðum og vinnslu og svo fór að lokum að afkastagetan var langt umfram það sem auðlindin gaf af sér.
    Nú er ekki lengur deilt um það að fiskiskipastóllinn er miklu stærri en sem nemur afkastagetu fiskstofnanna. Togarar okkar Íslendinga liggja m.a. þess vegna bundnir við bryggju í um 120 daga á ári hverju. Flestum ætti því að vera það eitt brýnasta hagsmunamál að skipum fækki til þess að hægt sé að auka arðsemi veiðanna. Með því móti geta skapast raunveruleg verðmæti sem ávallt hljóta að vera grundvöllur bættra lífskjara.
    Að undanförnu hefur fiskiskipum, 10 brl. og stærri, verið að fækka. Árið 1984 fengu 680 skip í þessum stærðarflokki veiðileyfi. Nú er svo komið að fjöldi þessara skipa er kominn niður í 627 skip. Ástæða er til að benda sérstaklega á þetta því í nál. hv. þm. Skúla Alexanderssonar kemur fram hið gagnstæða. Það fylgiskjal er ekki nýtt og nær aðeins til ársins 1987 og segir því ekki alla söguna. Þess má einnig geta hér að nú liggja engar beiðnir fyrir um nýsmíði á fiskiskipum. ( Gripið fram í: Hvað eru mörg skip í smíðum, hv. þm.?) Við getum komið að því í almennu umræðunni á eftir og það mun ég gera. En í dag liggja engar nýjar umsóknir fyrir um smíði á fiskiskipum.
    Það hefur verið gagnrýnt að þessi fækkun sé öll á kostnað báta og að hlutdeild þeirra í heildaraflanum hafi farið minnkandi. Þessar fullyrðingar virðast ekki eiga við rök að styðjast og má í því sambandi benda á frétt í 15. tölublaði Fiskifrétta þar sem fram kemur hið gagnstæða. Samkvæmt fréttinni lækkaði heildarþorskafli togara á milli 1984 og 1989 úr 53% í 43%.
    Í þessu sambandi bendi ég á fskj. III í nál. okkar Jóhanns Einvarðssonar. Þar kemur fram að sá mikli tilflutningur sem talinn hefur verið frá bátum til togara er ekki réttur. Mér virðist nokkurt jafnvægi ríkja og því ekki ástæða að taka upp takmarkanir á framsali milli skipaflokka sem hagkvæmt kann að teljast. Hins vegar er rétt að fiskiskipum í heild hefur fjölgað frá árinu 1984, en það skýrist af því að Alþingi hefur ekki enn sett sambærileg lög til að stöðva fjölgun smábáta sem m.a. hefur leitt til þess að hlutur þessara báta í heildaraflanum hefur aukist verulega á kostnað annarra skipa í flotanum.
    Mörgum hefur fundist lítið tillit tekið til smábáta í þeirri löggjöf sem búið hefur verið við og þeirra hlutur hafi verið fyrir borð borinn. Því er rétt að það komi skýrt fram hér að á örfáum árum hefur hlutur smábáta aukist hvorki meira né minna en úr 10 þús. tonnum í um 40 þús. tonn. Þessi aukni afli smábáta og sá sveigjanleiki sem sóknarmarkið hefur gefið, hefur leitt til þess að við höfum farið fram úr þeim aflamörkum sem sett hafa verið. Þetta er staðreynd sem menn verða að horfast í augu við.
    Tvö af meginatriðum frv. sem hér er til umfjöllunar eru einmitt að koma í veg fyrir alla frekari fjölgun fiskiskipa og afnema sóknarmark. Þetta

mun leiða til þess að hægt verður með meiri vissu en áður að halda heildaraflanum innan þeirra marka sem skynsamlegt þykir á hverjum tíma, en sóknarmarkið og veiðar smábáta hafa verið einn helsti skekkjuvaldurinn í því fyrirkomulagi sem ríkt hefur.
    Á undanförnum árum hefur átt sér stað mikil breyting á ráðstöfun aflans. Kemur þar tvennt til fyrir utan fiskmarkaðina. Annars vegar hefur frystitogurum fjölgað og hins vegar hefur útflutningur á óunnum fiski aukist. Því hefur mjög verið haldið fram af þeim sem tala gegn núverandi fiskveiðistjórnun, og talinn einn aðalgalli núverandi kerfis, að hinir ýmsu landshlutar hafi misst afla í mjög stórum stíl. Ef við skoðum fskj. I og II sjáum við að þetta er ekki rétt. Hér virðist hafa ríkt ótrúlega mikið jafnvægi milli landshluta hvað afla varðar. Útflutningur á óunnum fiski ýmissa aðila, m.a. á landsbyggðinni, vex hins vegar og það er okkur öllum áhyggjuefni. Ætla má að það hráefni sem fer fram hjá landvinnslu af þessum sökum sé um 200 þús. tonn á ári. Hér er um mikið magn að ræða sem ástæða er til að hafa áhyggjur af. Þessi þróun veikir mjög rekstrarstöðu innlendrar fiskvinnslu. Því er nauðsynlegt að í þessu efni ríki hvorki óstjórn né ofstjórn heldur að
heildarhagsmunir verði látnir sitja hér í fyrirrúmi. Ég trúi því að mikill vilji sé til þess að frekari úrvinnsla afla fari fram í íslenskum fiskvinnslustöðvum fremur en erlendum.
    Slæm rekstrarskilyrði þessarar undirstöðuatvinnugreinar undanfarinna ára hafa vissulega átt drjúgan þátt í þeirri þróun sem hér er lýst. En nú þegar tekist hefur að bæta hag greinarinnar trúi ég því að lögð verði mjög rík áhersla á að móta hér ekki aðeins skynsamlega fiskveiðistefnu heldur einnig skynsamlega fiskvinnslustefnu sem gefa muni meiri arðsemi til greinarinnar sjálfrar og þeirra er þar starfa. Því ber að fagna þeirri vinnu og þeim skilningi sem nú fer vaxandi á því að svo verði.
    Virðulegi forseti. Ég skal nú fara að ljúka máli mínu. Það mál sem hér er um fjallað hefur fengið óvenjumikla umfjöllun, bæði hjá þingmönnum og þeim sem í þessari atvinnugrein starfa. Þannig var séð til þess að allar upplýsingar og umræðan bærist til þingflokkanna með setu fulltrúa þingflokka í ráðgjafarnefnd og þeim þannig gefið tækifæri til að tjá sig um málið á öllu undirbúningsstigi þess og allt til endanlegrar afgreiðslu málsins frá ráðgjafarnefndinni. Því er það óskiljanlegt þegar þingmenn eru nú að tala um að þetta mál hafi ekki fengið nægjanlega kynningu eða upplýsingar hafi skort. Ef eitthvað hefur farið hér úrskeiðis er það heimavinna þessara aðila. Hún hefur ekki verið unnin sem skyldi.
    Engum blandast hugur um að við erum hér að fjalla um eitt allra mikilsverðasta mál íslensku þjóðarinnar, hvernig um þá auðlind, sem við eigum mesta, verði gengið. Við eigum ekki að láta villuljós verða til þess að þetta mál steyti á skerjum eða jafnvel sigli í strand. Stundarhagsmunir og sérhyggja verða hér að víkja fyrir hagsmunum þjóðarinnar allrar.

    Virðulegi forseti. Ég vænti þess að sú umræða sem hér á eftir að fara fram verði málefnaleg, Alþingi og atvinnugreininni sjálfri til ávinnings.