Frsm. 3. minni hl. sjútvn. (Karvel Pálmason) (frh.) :
Virðulegur forseti. Það kom fram bæði hjá hv. þm. Stefáni Guðmundssyni, sem er frsm. 1. minni hl., og hv. þm. Danfríði Skarphéðinsdóttur, sem er frsm. 2. minni hl., að nefndin klofnaði í fimm hluta, og mér er til efs að í jafnafdrifaríku og stóru máli hafi átt sér stað jafnmikill skoðanaágreiningur eins og í þessu máli. Þegar það gerist að Alþingi er að fjalla um fjöregg þjóðarinnar þá er ágreiningurinn svo mikill við meðferð málsins að það myndast hvergi meiri hluti í nefndinni fyrir því máli sem hér er nú til umræðu. Kannski sýnir þetta hvað best hvernig að málinu hefur verið staðið. Þó að menn hafi alltaf verið að vitna til hagsmunaaðila í þessum efnum, þá sýnir það sig núna að þeir eru að hluta til gersamlega andvígir meginparti málsins eins og það er lagt fyrir.
Ég ætlaði hér áðan að hafa endaskipti á hlutunum. Hér hafa menn byrjað á að flytja nefndarálit. Kannski geri ég það síðast ef ég kem þá ekki inn á það meðan ég tala sem kannski verður ekki mjög lengi, enda ekki ætlan mín að draga þetta mál á langinn. Þó er nauðsynlegt að koma vel til skila ýmsum hlutum hér.
Ég var að minna á það áðan að árið 1987 þegar Borgfl. var nýorðinn til, fulltrúar hans sestir hér á Alþingi, þá voru þeir hinir hörðustu andstæðingar þess að kvótafrv. yrði látið fara hér í gegn. Þeir héldu uppi málþófi í þessari deild fund eftir fund undir forustu núv. hæstv. umhverfismálaráðherra og neituðu gersamlega að þetta mál næði fram að ganga. Hver hafa umskiptin orðið? Hvað hefur breyst? Hefur sannfæringin breyst eða hvað hefur gerst?
Lengi vel lá það í loftinu að einn af fulltrúum Borgfl., hv. þm. hér í deildinni, mundi snúast gegn þessu máli eins og það var. Það var á síðustu dögunum sem ljóst var að þessi hv. þm. hafði ánetjast. ( Gripið fram í: Hann hefur kannski sloppið aftur.) Svo kann að vera. Ekki tók ég nú viðtalið við hv. þm. í sjónvarpinu á mánudagskvöld á þann veg. Hér á ég við hv. þm. Guðmund Ágústsson, 5. þm. Reykv. Og ég verð að segja það fyrir mig, eftir að hafa setið hér meira og minna á Alþingi í nær 19 ár, að ég hef aldrei upplifað önnur eins sinnaskipti þeirra einstaklinga sem hafa verið kjörnir af þjóðinni til þess að fara með málefni hennar hér inni á Alþingi. Maður fer að halda að einhvers konar kaupskapur hafi átt sér stað, bæði að því er varðaði aðild Borgfl. að ríkisstjórn og síðan þetta síðasta þegar þessi hv. þm. svissar svona gersamnlega yfir. Rökin hjá hv. þm. voru þessi: Ég fékk mínu framgengt. Það var lögð fram tillaga um að endurskoða lögin um upptöku ólöglegs
sjávarafla sem lá fyrir löngu áður en þessi yfirlýsing kom. Hæstv. sjútvrh. hafði sjálfur í mín eyru sagt að það væri vilji þeirra að þetta yrði gert og kallar hann nú ekki allt ömmu sína í þessum efnum sem leiðir af fiskveiðistefnunni og kvótastjórnun þannig að þetta er auðvitað hreinn útúrdúr. Hér hefur kaupskapur átt sér stað. Með hvaða hætti og hversu mikill skal ósagt
látið en kannski upplýsist það hér í umræðunum.
Auðvitað er margbúið að vitna til þess hér á Alþingi úr þessu ræðustól og víðar hversu miklir agnúar eru á því kerfi sem við höfum búið við frá því 1984. En menn segja alltaf eins og hæstv. sjútvrh.: Hvar eru tillögurnar ykkar? Lofið okkur að sjá tillögurnar ykkar. Þær eru engar. En það hefur verið nákvæmlega sama hvaða tillögur hafa verið settar fram. Það eina sem hefur verið tekið gilt eru þær hugmyndir og sú framkvæmd sem hæstv. sjútvrh. hefur haft og virðist eiga að fá að hafa í þessu máli áfram. Og það er auðvitað rétt, sem kemur fram í nál. hjá mér, að hæstv. ráðherra er nánast dávaldur í þessum efnum. Ég sé ekki betur en fulltrúar þessara svokölluðu A-flokka innan ríkisstjórnarinnar standi nánast með allt niður um sig í þessum efnum gagnvart hæstv. ráðherra, þessum dávaldi eða einvaldi eða hvað menn vilja kalla hann. Slík eru heljartökin sem hann hefur náð á þessum vettvangi. Út af fyrir sig á kannski ekki að vera að álasa honum og það hef ég sagt hér áður. Það er auðvitað vesældómur hinna að láta með þessum hætti leiða sig út á þessar villigötur í fiskveiðistjórnun.
Ég ætla að minna á það í leiðinni að því er þetta varðar að 1987 þegar málið var hér síðast til meðferðar, þá sameinuðust við, ég og hv. þm. Matthías Bjarnason sem þá gegndum formennsku í báðum sjútvn. þingsins, um brtt. við frv. eins og það lá fyrir þá, ekki grundvallarbrtt. í þeim efnum. Þær lutu fyrst og fremst að því að gera kerfið mannúðlegra, minnka völd þessa einstaklings, hæstv. ráðherra, frá því sem þau voru áður. Á þetta var ekki hlustað. Þetta var steindrepið hér í hv. deild. Nú ætla, að því er mér sýnist, þeir sem stóðu þá að þessum tillögum með okkur hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni, þ.e. fulltrúar Borgfl., nú ætla þeir gersamlega að svissa yfir, taka allt aðra afstöðu. Ég er ekki hissa þó að almenningur í landinu sé hættur að botna í þeirri hringavitleysu sem hér getur átt sér stað oft og tíðum.
Það hefur komið hér fram í þessari umræðu að málið hafi fengið töluvert mikla umfjöllun í nefnd. Það er út af fyrir sig rétt. Málið, eins og það var lagt fyrir þingið, hafði fengið nokkra umfjöllun. En eftir að ráðherranefndin hafði komist að samkomulagi um grundvallarbreytingu á málinu þá fékk það ekki
mikla umfjöllun í nefndinni, eða a.m.k. ekki eins mikla og það hefði þurft að fá miðað við þessar gerbreyttu forsendur á málinu. Það er auðvitað allkynlegt á það að hlusta í fjölmiðlum, útvarpi, sjónvarpi, blöðum, að nú séu þrír ráðherrar búnir að komast að samkomulagi um allt málið, málið sé í höfn eftir að hv. þm. Guðmundur Ágústsson hafði fallist á að styðja það. Það er náttúrlega ömurlegt til þess að vita að menn séu að ræða um svona mál í lýðræðisríki. Það er engu líkara en það séu bara sjónarmið viðkomandi ráðherra sem eiga að gilda í svo til öllum málum. Um leið og hv. þm. eru sestir í ráðherrastóla þá er allt hægt. Þá kyngja menn og kyngja miskunnarlaust öllu því sem þeir hafa áður sagt. Og það er greinilega óróleiki í sumum hæstv.
ráðherrum sem eiga að vera hér inni og hefðu gott af að hlýða á umræður sem þessar.
Það er líka rétt að minna á og hefur reyndar verið minnt á og á auðvitað við í þessari umræðu, að núv. hæstv. umhverfismálaráðherra stóð að flutningi frv. hér í vor undir forustu hv. þm. Þorv. Garðars Kristjánssonar, skrifaði hér upp á frv. um stjórnun fiskveiða sem er með allt öðrum hætti en menn eru hér að tala um sem hann er núna búinn að samþykkja fyrir sig. (Gripið fram í.) Akkúrat. Núna, nokkrum mánuðum seinna, er þessi hv. þm., núv. hæstv. ráðherra, búinn að skrifa undir allt annað frv. sem er í þveröfuga átt við það sem hann skrifaði undir í vor, en var þá að vísu ekki ráðherra. Þarna virðast skilin vera. ( Gripið fram í: Hver var þessi ráðherra?) Það var hæstv. umhverfismálaráðherra sem flutti hér frv. ásamt hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni um að afnema kvótann, kemur svo hér, nýsestur í ríkisstjórn, skrifar upp á frv. um að gera kvótann enn verri en hann var áður. Það sem Tíminn segir að hæstv. forsrh. hafi sagt í utandagskrárumræðu hér um daginn hefði auðvitað getað átt við núv. hæstv. umhverfisráðherra, að nú hefði hann talað sig bláan og rauðan í þessu máli öllu saman frá því í vor að hann flutti frv. um afnám kvótans þangað til núna að það kemur frv. um að styðja hann og gera hann enn verri en hann hefur verið áður. Ja, þvílíkt að upplifa aðferðir á hv. Alþingi sem eru með þessum hætti.
Ég ætla, herra forseti, að víkja í örfáum orðum að þætti Alþýðuflokksforustunnar í þessum efnum og minna á það að í höfuðvígi jafnaðarstefnunnar, sem eru Vestfirðir, ég tala nú ekki um Ísafjörð, hefur kvótanum gersamlega verið afneitað. ( Gripið fram í: En auðlindaskatturinn?) Líka. Og það þarf ekki bara að tala að þessu leytinu til við jafnaðarmenn. Fjöldafundir hafa verið haldnir á Ísafirði, á svæðinu, undir forustu t.d. Fjórðungssambands Vestfirðinga og skipstjórafélagsins Bylgjunnar með aðild Alþýðusambandsins, Útvegsmannafélagsins, Vinnuveitendafélags Vestfjarða, svona mætti lengi telja, þar sem allt er á þessu sömu nótum að kvótinn er að verða þess valdandi að allar þessar byggðir riða til falls. En á þetta er ekki hlustað. Ég átti nú ekki von á því að hv. þm. Framsfl. mundu á þetta hlusta undir dáleiðslunni úr þeim herbúðum frá hæstv. ráðherra. En maður hefði kannski getað gert sér von um að það gerðu ráðherrar Alþfl., ég tala nú ekki um tveir af þeim þremur, Félagsbakaríismenn og alþýðuflokksmenn frá Ísafirði. (Gripið fram í.) Nei, veit ég vel, hv. þm. En kannski verður það nú svo að þeim berist þetta til eyrna ef þeir ekki vita það fyrir. (Gripið fram í.) Já, það er rétt. En mig undrar það að eftir að hafa alla þessa vitneskju frá íbúunum á svæðinu, frá fólkinu sem við þetta þarf að búa, að þessir menn skuli gersamlega reka hnefann í andlitið á þessu fólki.
Ég ætlaði að fara að segja áðan: Hvað halda menn um staðina þegar veiðileyfasala hefst þar sem þeir geta borgað mest sem mesta hafa peningana, þegar auðlindaskatturinn er kominn á sem
Hagræðingarsjóðurinn var byrjunarskrefið á? Því menn eru ekki að enda hérna. Þetta er byrjunin á veiðileyfasölu og auðlindaskatti og þá verður það svo að þeir sem mesta hafa peningana geta keypt þetta allt upp. Hvaða skoðun hafa þingmenn eða ráðherrar Alþfl. eins og Jón Baldvin Hannibalsson, hæstv. utanrrh., Jón Sigurðsson, hæstv. viðskrh., og Jóhanna Sigurðardóttir, hæstv. félmrh., á þeim þrengingum sem að þessu fólki öllu steðjar? Hvar halda þessir hæstv. ráðherrar að það fólk, sem hefur stutt jafnaðarmannaflokkinn, Alþfl., um langan aldur, lendi? Ég ítreka það að engu líkara er en bæði þessir hæstv. ráðherrar og ráðherrar Alþb., lítt eru þeir nú skárri, séu með allt niður um sig frammi fyrir hæstv. sjútvrh. í fiskveiðimálum, bókstaflega allt saman, standi þar berstrípaðir og hafi nánast enga skoðun aðra en þá að halda því fram að það eigi að murka þannig lífið úr því fólki sem fyrst og fremst byggir á þessari atvinnugrein og sem þjóðin gerir auðvitað öll.
Ég hef hér í höndunum fjölda ályktana frá Vestfjörðum, frá stýrimannafélaginu Bylgjunni, frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, atvinnumálastefnu, sem Fjórðungssambandið hélt á Ísafirði á sl. hausti, sem leiddi í ljós að kvótinn hefur haft þær afleiðingar fyrir Vestfirði að þeir hafa dregist verulega aftur úr að því er varðar aflahlutinn, frá Alþýðusambandi Vestfjarða, hver er forseti þar? Hver er forseti Alþýðusambands Vestfjarða? Hann heitir Pétur Sigurðsson, einn af mestu framámönnum Alþfl.
vestra um alllangan tíma. Þetta er líka frá verkalýðsfélaginu Baldri. Hver er formaður þar? Pétur Sigurðsson. Þetta er líka frá kjördæmisráði Alþfl. á Vestfjörðum. Hver er mestur framámaður þar? Pétur Sigurðsson. Og sá hinn sami Pétur Sigurðsson hefur sagt, og ég tek undir það með honum, að þeir sem styðja kvótann eru svikarar. ( GHG: Sagði hann þetta við vígsluna í gær?) Ég var ekki við vígsluna í gær, Guðmundur H. Garðarsson, enda átti þetta enga leið þar. Hann hefur margítrekað þetta áður.
Svona mætti auðvitað lengi telja ályktanir þess fólks sem sér hvert stefnir og hvað verður ef ekki verður reynt að snúa við blaðinu í þessum efnum. Mér er vissulega ljóst að ekki er hægt með einni handahreyfingu að snúa ofan af þessu öllu saman. En það er hægt að gera þetta manneskjulegra. Það er hægt að draga þetta ógnarvald úr höndum eins manns sem er hæstv. ráðherra sjávarútvegsmála. Það er hægt að draga úr því ægivaldi sem honum hefur verið veitt hér á Alþingi í þessum efnum. En fyrir því virðist enginn vilji. Menn sáu móta fyrir ljósi. Menn eygðu glætu fyrir 3--4 dögum einmitt í ljósi þess að hv. þm. Borgfl. voru á svipuðu máli og við á þeim árum sem hér var barist hvað harkalegast gegn þessari stefnu. Þá eygðu menn glætu, en nú er allt svartamyrkur nema því aðeins að kraftaverkin geti enn gerst og menn sjái hversu höllum fæti þessi stefna er farin að standa.
Það hefur aldrei verið jafnmikill ágreiningur um kvótamálin og er núna og hann á eftir að verða meiri ef menn ætla að stíga áfram skrefin til veiðileyfasölu og auðlindaskatts. Þá eru menn viljandi, vitandi vits,
að leggja í auðn heilu landsvæðin sem byggja fyrst og fremst á fiskveiðum og fiskvinnslu. Það er einkennilegt að heyra þetta frá hæstv. ríkisstjórn á sama tíma og talað er um að byggja álver hingað og þangað með atvinnutækifæri fyrir hundruð eða þúsundir manna á þeim svæðum sem hafa miklu betri og öruggari skilyrði til atvinnu en þeir sem búa svo til einvörðungu við fiskveiðar og fiskvinnslu. Væri ekki meiri jafnaðarmennska í því, ef hún er til á annað borð, ef menn vilja heilsteypta atvinnustefnu, ekki bara í einni grein heldur að fá hana heilsteypta, að segja: Meðan talið er að meira megi ekki veiða úr sjónum, meðan svo er verður auðvitað að minnka kvótann hjá þeim sem fá önnur atvinnutækifæri og færa til hinna sem byggja á fiskveiðunum einum. (Gripið fram í.) Ég er nú sem betur fer, hv. þm., ekki að tala fyrir hönd sjálfstæðismanna. Ég held að ég sé nú að tala fyrst og fremst vegna þess að ég tel mig hafa reynslu af því sem hefur verið að gerast á mínu svæði. Ég ætla ekki að dæma önnur. Og ég sé ekki betur en menn fljóti hér sofandi að feigðarósi ef engin breyting verður á.
Ég hef lesið margar greinar úr Vesturlandskjördæmi frá mönnum sem hafa unnið við þessi störf svo áratugum skiptir. Hvað segja þeir? Þeir eru búnir með kvótann á 2--3 mánuðum. Þá er ekkert að gera. Þá er allt í rúst. Þetta er á Vesturlandi og þetta er auðvitað víðar, því er nú ver.
Ég verð að viðurkenna að ég hefði búist við því að þegar verið er að ræða hér á sama tíma mál eins og fiskveiðistefnuna og talað um að fjölga atvinnutækifærum með byggingu stóriðjuvera, þá tækju menn þetta í samhengi og reyndu að líta til þeirra svæða sem fyrst og fremst byggja afkomu sína á því að fara á sjó, draga fisk og vinna hann til að afla gjaldeyris. En það er ekki að sjá að þetta ljós sé komið inn í hugi manna sem nú ráða ferðinni.
Ég held að það sé rétt að ég taki það fram strax þó að ég sjái nú ekki ástæðu til þess að lesa nál., það kemst til skila án þess, en sem fskj. með því er títtnefnd bókun eða stefna í kvótamálunum sem var samþykkt af þingflokki, að því er sagt er, Alþfl. án mín og sérstök bókun sem Sighvatur Björgvinsson gerði þar sem hann er ekki samþykkur. Og ég held að það sé rétt að ég lesi niðurlagið, með leyfi forseta, að mínu nál.:
,,Rétt þykir í lokin að fram komi vegna bókunar þeirrar sem þingflokkur Alþfl. gerði varðandi frv. um stjórn fiskveiða að undirritaður, sem er andvígur bókuninni, sat ekki þann þingflokksfund frekar en aðra fundi þingflokksins undangengna mánuði, en til þess liggja ýmsar ástæður. En þar sem ljóst er að þingflokkur Alþfl. hefur lýst stuðningi við brtt. 1. minni hl. nefndarinnar við frv. og lítur svo á að með þeim sé komið til móts við sjónarmið þingflokksins telur undirritaður rétt að birta þessa bókun frá 23. apríl sl. með nál. sem fskj. Sighvatur Björgvinsson, 5. þm. Vestf., lagði til að afgreiðslu málsins yrði frestað.``
Þetta hefur gerst í þingflokki Alþfl. Í raun og veru
hefur engin breyting orðið frá því 1987 önnur en sú, og hún er kannski slæm, að menn eru farnir að taka undir veiðileyfasölu og auðlindaskattinn. Og það er kannski slæmt í mínum huga og verra þá en verið hefur áður. (Gripið fram í.) Að það sé slæmt, já, hv. þm., ef menn eru að taka undir það að halda eigi uppi veiðileyfasölu og auðlindaskatti.
Það hefur líka komið fram hér, það liggur á borðum hv. þm., að ég er aðili að tillögu þar sem lagt er til að málinu verði vísað aftur til sérfræðinganefndarinnar, eins og menn kalla hana, á þeim forsendum, sem margoft hafa verið tilteknar hér, að sérfræðinganefndin hefur ekki skoðað
málið í því ljósi sem það er núna. Illa hugsandi menn gætu sagt, ég er ekki að segja að ég segi það, þeir gætu sagt sem svo: Var það gert að yfirlögðu ráði að sérfræðinganefndin léti málið frá sér eins og hún gerði, en síðan yrðu það þrír ráðherrar sem gerbreyttu grundvallarforsendum málsins á síðustu dögum inni í nefndinni áður en það kom til 2. umr.
Ég vil ekki ætla mönnum þetta. En auðvitað leita á mann ýmsar hugsanir þegar maður horfir upp á þá ördeyðu sem hér ríkir hjá sumum hv. þm. í afstöðu til mála og brjóta sannfæringuna niður við skurn á einum, tveimur dögum.
Ég vona að þessi tillaga verði samþykkt. Mér fer líkt og hæstv. forsrh., hann aumkvaðist yfir þá sem væru á móti þessu máli. Ég aumkvast yfir þann tiltölulega litla meiri hluta sem ætlar að knýja þetta mál í gegn á þeim forsendum sem hér eru lagðar fyrir. Yrði það svo að aðeins ylti á einu atkvæði, á atkvæði frá þingflokki sem barðist harðast gegn þessu máli fyrir þremur árum síðan og hæstv. umhverfismálaráðherra sem flutti frv. á sl. vori um að afnema kvótakerfið, og síðan ætti það að vera Borgfl., með eins atkvæðis meiri hluta, sem viðhéldi þessu kerfi --- og þá enn verra en það hefur verið.
Er nokkuð furðulegt að almenningur hafi lítið traust á þingmönnum sem þannig haga sér? Hér eru menn auðvitað --- og það er best að tala íslensku, hún skilst yfirleitt best --- að reyna að framlengja líf þessarar ríkisstjórnar um eitt ár. Það er það sem verið er að gera. Og menn sitja svo fast í ráðherrastólunum uppi í ráðuneyti að þeim verður ekki þokað til þess að hlýða á umræður hér.
Ég heyri að hæstv. sjútvrh. verður leiður á þessu rausi þó að mest af því sé kannski hól um hann. ( Grip ið fram í: Ha?) Já, var það að verulegu leyti. Vegna þess hversu hinir eru slæmir þá getur hann orðið tiltölulega góður og það kallast hól ef menn bara taka það eins og það er sagt. (Gripið fram í.) Já, það hlaut að koma að því.
Ég skal, herra forseti, ekki hafa þessi orð öllu fleiri. En ég vil þó koma því á framfæri að fari það svo gegn mínum vonum að frávísunartillagan verði ekki samþykkt, þá mun ég við 3. umr. þessa máls bera fram brtt. Þær munu þá verða fluttar formlega við 3. umr. en þær eru á þann veg að ef þessi óskapnaður verður samþykktur, eins og hann nú liggur fyrir, þá verði gildistíminn aðeins eitt ár, árið 1991.
Menn vita að það eru lög í gildi til ársloka 1990. Þessi brtt. yrði í þá veru að væntanleg löggjöf gilti þá aðeins í eitt ár.
Hin brtt. mundi verða þannig að það mundi bætast við nýtt ákvæði til bráðabirgða sem væri á þann veg að árið 1991 skal útgerð Hafrúnar ÍS-400, sem fórst á árinu 1983, eiga kost á veiðileyfi fyrir skip sem kemur í hennar stað. Skal því skipi úthlutað aflamarki af loðnu og úthafsrækju eftir sömu reglum og gilda um önnur loðnuskip.
Ég veit ekki hvort menn muna það frá umræðum 1987 hér í deildinni að þá var álíka tillaga flutt, að vísu þá um tvö skip, annað úr Vestmannaeyjum. Hún var líka felld. Og ég bið menn nú að hugsa um það án þess að það eigi kannski að vera að ræða það núna því að vonandi kemur ekki til þess að þetta frv. verði samþykkt hér, en ég bið menn samt að hugsa um það hvert áfall það yrði, ekki bara þessari útgerð heldur og byggðarlaginu, ef þetta yrði enn einn þátturinn í því að draga lífsbjörgina frá þessu fólki, frá stað sem hefur loðnuverksmiðju, getur nýtt sér hana. Hún er tiltölulega fullkomin í vinnslu en fáist ekki breyting á þessu þá er ekki víst hvað kann þarna að gerast á enn verri veg en gerst hefur til þessa undir þeirri stjórn fiskveiða sem við höfum upplifað frá árinu 1984.