Guðmundur H. Garðarsson (um þingsköp) :
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að hæstv. sjútvrh., sem hér er staddur, varaformaður Framsfl., svari því hvort það sé rétt sem hv. þm. Skúli Alexandersson sagði hér áðan að ríkisstjórnin kunni að hafa ákveðið að þinghald verði í næstu viku. Vegna þess að ef svo er þá er búið að hafa okkur hv. þm. hér að hálfgerðum fíflum í kvöld. ( Gripið fram í: Algerum.) Og algerum með því að láta okkur fjalla hér um þetta mál með þeim hætti sem við höfum neyðst til að gera. Það er vítavert ef þetta er rétt.